Gott hjá Guðmundi

Gott hjá Guðmundi. Það hefur verið allt of algengt að fólk sem skipt hefur um flokka sitji áfram á alþingi og í sveitarstjórnum, þótt það hafi í raun misst umboð þeirra sem kusu það.
mbl.is Tekur ekki sæti á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Þetta ætti að vera meginreglan. Ef fólk segir sig frá flokkum á það að hætta að gegna trúnaðarstörfum fyrir viðkomandi. Lögin segja hins vegar að persónan sé kosin en ekki flokkurinn en allir vita að svoleiðis er það ekki í raun. Þegar meirihluti stendur tæpt getur einn í fýlu valdið ómældu tjóni og til eru mörg dæmi um slíkt. Sérstaklega í sveitastjórnum.

Víðir Benediktsson, 9.1.2009 kl. 07:58

2 identicon

Ég hef aldrei skilið hvernig fólk getur setið áfram á þingi eftir að hafa skipt um flokk og enginn segir neitt við því. Þingmenn eru ekki kosnir sem einstaklingar heldur sitja þeir fyrir ákveðinn flokk. Sjálfkrafa ættu menn að detta út af þingi ef þeir ákveða að skipta um flokk allt annað er siðlaust og á móti lýðræði ekki satt?

Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 08:02

3 identicon

Gott hjá Guðmundi. Vonandi það sem við eigum eftir að sjá meira af í þessu landi . Það er ekkert eðlilegt við að kjörnir fulltrúar fyrir ákveðna flokka sitji áfram eftir að hafa skipt um flokk. Eins og því miður hefur verið raunin undanfarin ár og er óþarfi að nefna nöfn í því sambandi. Guðlaugur. 

Guðlaugur (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 08:34

4 Smámynd:

Heiðvirt af Guðmundi.

, 9.1.2009 kl. 09:48

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Til eftirbreytni

Hólmdís Hjartardóttir, 9.1.2009 kl. 18:39

6 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Aha, Guðmundur hefur örugglega útpælt þetta með þessu útspili, nú ætlar hann að vera öðruvísi og skora nokkur stig fyrir næstu kosningar. Segir negatívi baularinn.... :-/.... og þó, sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Ja, það er nú bara mín skoðun :-)

En gaman að lesa þig aftur, Halli kallinn. Hlakka til að lesa meira :-)

Lilja G. Bolladóttir, 9.1.2009 kl. 20:59

7 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Hvað er að þessu fólki og þeirra málstað má bara ekki fara á Austurvöll eins og þeir sem nenna hvað með að vera alltaf að skipta um flokk ?

Þessir menn ættu bara að' setja fyrir andlitið og mótmæla svo.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 11.1.2009 kl. 02:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband