Táknrænt eins og hátekjuskatturinn

Hvort sem þessir mótmælendur eru fulltrúar þjóðarinnar eða ekki skiptir engu máli Ingibjörg Sólrún. Þetta er nokkuð sem þú og þínir líkir geta búist við eftir aðgerðarleysi og aumingjaskap ríkistjórnarinnar sem fyrst og fremst bitnar á öllum almenningi en ekki þeim sem meira mega sín. Þessi mótmæli er táknræn eins og hátekjuskatturinn, Solla! 
mbl.is Kryddsíld lokið vegna skemmdarverka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Við Sigrún vorum mjög prúðar

Hólmdís Hjartardóttir, 31.12.2008 kl. 15:16

2 identicon

Táknræn??ertu ekki í lagi?

Hvernig sem þú sérð málstað Ingibjargar þá er þetta pakk ekki hjálpa til það get ég sagt þér.

oskar (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 15:17

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Slituð þið snúrurnar hjá Stöddunum?

Haraldur Bjarnason, 31.12.2008 kl. 15:18

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þeir sem eru fyrir utan Hótel Borg eru meiri fulltrúar mínir en þeir sem inni eru, þó svo að þeir sem inni eru hafi fengið atkvæði mitt fyrir 20 mánuðum síðan.  Það stendur ekki steinn yfir steini af kosningaloforðum þeirra.

 2009 hat Gleðilegt ár.





Magnús Sigurðsson, 31.12.2008 kl. 15:22

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Oskar ég veit ekki hvar þú sérð einhverja hjálp í gerðum Sollu og stjórnarliða. Held að "þetta pakk" geri jafnvel meira gagn. Þú veist vænatnalega að Solla taldi hátekjuskatt ekki brýnan heldur eingöngu táknrænan. Hefurðu ekki fylgst með.

Haraldur Bjarnason, 31.12.2008 kl. 15:30

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Halli það voru ekki við sem brenndum kaplana....en við vorum farnar að hugsa um hvað væri í matinn í steininum í kvöld

Hólmdís Hjartardóttir, 31.12.2008 kl. 15:38

7 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sonur minn hringdi áðan og spurði hvar ég væri, ég sagðist vera í fangelsi.....honum fannst ég ekki fyndin

Þar sem við Hólmdís erum ekki "fulltrúar" þjóðarinnar, þurfum við varla að taka þátt í að greiða niður skuldir hennar

Sigrún Jónsdóttir, 31.12.2008 kl. 16:24

8 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Nei Sigrún við sleppum líklega við það

Hólmdís Hjartardóttir, 31.12.2008 kl. 16:27

9 Smámynd: Víðir Benediktsson

Sigrún. þetta er náttúrulega snilldarathugasemd hjá þér.

Víðir Benediktsson, 31.12.2008 kl. 17:51

10 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Kæra Sigrún. Um hvaða skuldir ertu að tala? Við þurfum ekki að skattleggja okkur í drep til að halda uppi ónýtum gjaldmiðli, eða hvað?

Að greiða atkvæði með fótunum, er það sem blasir við ef ekkert að gert. Hvort sem Geir eða Solla eða Hörri eru í ríkisstjórn. Fólk flýr úr landi ef atvinnulífið er ekki virkt.

Hvað er málið?

Jón Halldór Guðmundsson, 1.1.2009 kl. 04:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband