Til hvers?

Sé ekki til hvers ætti að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort ganga eigi til aðildarviðræðna. Er ekki rétt að hefja aðildarviðræður? Athuga hvað við fáum og hverju við þurfum að fórna. Síðan er komið að þjóðarakvæðagreiðslu um hvort við sækjum um eða ekki. Þjóðaratvæðagreiðsla kostar mikið og þessu fyrsta skrefi er auðveldlega hægt að sleppa. 
mbl.is Umsókn í þjóðaratkvæði?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Sammála.

Sigrún Jónsdóttir, 31.12.2008 kl. 08:31

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ja. Sko ef þjóðin vill ekki fara í þessar viðræður þá er hægt að slá þetta af strax. Það kostar líka mikið að standa í heljarinnar samningabatteríi sem verður svo skítfellt í þjóðaratkvæðagreislu.

Víðir Benediktsson, 31.12.2008 kl. 08:35

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Víðir. Við getum ekki kosið um eitthvað sem við vitum ekki hvað er. Fyrst þurfum við að fá að vita hvað er í boði og hverju þarf að fórna. Þetta hjá þér hljómar nákvæmlega eins og borðskapur LÍÚ furstanna að undanförnu. Gefa sér forsendur fyrirfram.

Haraldur Bjarnason, 31.12.2008 kl. 08:56

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það sem kemur fram í áramótaávörpum Geirs og Ingibjargar er varla annað en pólitískur hráskinnaleikur til að þjappa liðinu í egin baráttu við að halda völdum.  

Það þarf að vera númer eitt að losna við núverandi valdhafa áður en liðinu skipt í fylkingar um það sem í raun er aukaatriði í stöðunni eins og hún er núna. 

Fyrst þurfa allir flokkar að taka til hjá sér og endurstilla stefnuna á ástanið eins og það er, svo þarf þjóðina að fá að kjósa og getur þá kosið um það í leiðinni hvað það eiga að verða margar þjóðaatkvæðagreiðslur um þjóðaratkvæðagreiðslu.

Magnús Sigurðsson, 31.12.2008 kl. 09:30

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Sammála þér Halli þetta á að skoða. En er samt ekki sannfærð um að við eigum heima í ESB.....vil bara fá allt upp á borðið

Rafræn þjóðaratkvæðagreiðsla kostar ekki svo mikið

Eigðu frábæran Gamlársdeg

Hólmdís Hjartardóttir, 31.12.2008 kl. 10:28

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Eigum við ekki að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort við eigum að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB? Þannig er hægt að teygja svolítið á þessu og allir verða ánægðir. Rafrænt eða ekki. Það verður aldrei alfarið rafræn kosning. Hvað með gamlingjana sem kunna ekki á tölvur Hólmdís? 

Haraldur Bjarnason, 31.12.2008 kl. 11:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband