Þetta er rugl

Sex til átta ára gömul brot sem marg oft er búið að sýkna af og vísa frá dómi. Er ekki nær að snúa sér að þeim málum sem einhverju skipta núna? Útrásinni og bankasukkinu. Hvað með Davíð og hans rugl? Vel má vera að Jón Ásgeir sé ekki saklaus í bankasukkinu. Þetta er hins vegar rugl, sem bara þýðir kostnað fyrir ríkið.


mbl.is Gamla Baugsmálið enn á ferðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Bíddu með að dæma Davíð, Haraldur. Þó það henti vinstra liðinu að gera hann að blóraböggli, þá er ekki víst að draumur ykkar rætist. Það á eftir að fara fram rannsókn á þessu öllu.

Gunnar Th. Gunnarsson, 18.12.2008 kl. 18:54

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Er ekki að dæma einn eða neinn Gunnar, en það er full þörf á að rannsaka ýmis mál fleiri en Baugsmál.

Haraldur Bjarnason, 18.12.2008 kl. 19:05

3 Smámynd: Sævar Finnbogason

Hvað ertu eiginlega að fara með þessarri færslu Halli? Eigum við að hætta að sækja skattsvikamál vegna þess að málsóknin kostar peninga?

Baugsmálið sjálft sem er annað mál og sneri að fölsuðum kreditreikningum, fjárdrætti og bókhaldsbrot uppá hundruðir milljóna EKKI SKATTSVIK

átti kanski ekki að sækja það mál vegna þess að Baugur hafði efni á að ráða stóran her lögfræðinga? 

Ef farið væri að slíkum ráðum yrði dómskerfið á endanum aðeins notað til að rétta yfir smælingjum sem stolið hafa tyggjópökkum í Bónusi eða eitthvað álíka

Sævar Finnbogason, 18.12.2008 kl. 22:52

4 Smámynd: Sævar Finnbogason

Hinsvegar er ámælisvert hversu legni hefur verið dregið að sækja þetta mál. Sennilega skýrist það þó af skorti á mannafla.

Sævar Finnbogason, 18.12.2008 kl. 22:54

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sævar. Ég held við þurfum miklu meiri málum að sinna núna en endurtaka sífellt eitthvert klúður. Þetta rugl er nú þegar búið að kosta þjóðfélagið hundruð milljóna á meðan önnur og stærri mál þola ekki dagsljósið.

Haraldur Bjarnason, 18.12.2008 kl. 23:16

6 identicon

Nú verður að fara gætilega svo upp komi ekki Stokkhólmsyndrómið.Þá hlutu sakborningar alla samúð landsmanna, líka þeir sem voru í gíslingu.

J.a. (IP-tala skráð) 18.12.2008 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband