Frekar njóla

Kartöflur eru ágætis matur og hafa verið ræktaðar hér á landi frá ómunatíð. Legg til að ráðherrum verði gefinn njóli til nota í súpu en það var ákkúrat það sem Danir gerðu á sínum tíma til að bjarga íslensku þjóðinni frá sulti. Njóli er fyrirtaks matjurt. Kominn hingað til lands af jósku heiðunum. Þeim þótti það skárra Dönum að flytja njólann hingað en okkar forfeður út.
mbl.is Þorgerður Katrín fær kartöflu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Njólajafningur með reyktum fiski er bara dágóður matur.  Mývetningar á sjúkrahúsinu á Húsavík áttu gjarnan njóla í náttborðinu til að naga.

Hólmdís Hjartardóttir, 16.12.2008 kl. 20:46

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Svo reyktum við njóla í gamla daga!!!

Haraldur Bjarnason, 16.12.2008 kl. 21:17

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Og ég reykti lyng!

Hólmdís Hjartardóttir, 16.12.2008 kl. 21:23

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Væri ekki nær að bjóða þeim, það sem úti frýs. Það heitir kaup kaups.

Víðir Benediktsson, 16.12.2008 kl. 21:28

5 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Skítur sem flýtur, það er það sem þau eiga skilið. Jöfn býtti.

Magnús Sigurðsson, 16.12.2008 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband