Best að koma sér suður

Akureyri er láglaunasvæði og laun á almennum markaði þar um 30% lægri en gengur og gerist á Suð-Vesturhorninu. Laun opinberra starfsmanna eru hins vegar þau sömu og syðra. Þess vegna eru opinberir starfsmenn betur haldnir en aðrir enda húsnæðisverð á Akureyri mun lægra en syðra. Þeim forsvarsmönnum bæjarins er því engin vorkun að lækka í launum. Svo er Norðurorka að hækka verð líka, en það er ein dýrasta orkuveita landsins fyrir. Bærinn gaf fyrir stuttu yfirlýsingar um að gjaldskrár yrðu ekki hækkaðar! - Svo gerir áætlun bæjarins ráð fyrir fjölgun! - Þvílík bjartsýni. Ætli það sé ekki best að koma sér suður.
mbl.is Akureyri hækkar gjaldskrár um 10%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Komdu bara!

En það er falllegra og betra veður fyrir norðan

Hólmdís Hjartardóttir, 16.12.2008 kl. 18:39

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Bara svona til upplýsinga. Laun bæjarfulltrúa á Akureyri eru aðeins brot af því sem gerist í Reykjavík.

Víðir Benediktsson, 16.12.2008 kl. 19:25

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Víðir. Laun bæjarfulltrúa eru allsstaðar hluti af þingfararkaupi. Hins vegar eru bæjarfulltrúar á Akureyri ekki í fullu starfi eins og í Reykjavík. Þeir mega þó alveg við því að lækka um 10%. En það er eins með bæjarfulltrúa á Akureyri og almennt launafólk. Launin eru lægri og allir virðast sáttir við það. Skil þetta ekki.

Haraldur Bjarnason, 16.12.2008 kl. 19:33

4 Smámynd: Sigurbjörg

Vertu velkominn suður Haraldur :)  

Þykist þó vita að borgin svo og aðrir fylgi í kjölfarið með hækkunum ....

Sigurbjörg, 16.12.2008 kl. 20:19

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já ef ég fer þá getur bæjarstjórnin lækkað fjölgunina niður 199 í stað 200.

Haraldur Bjarnason, 16.12.2008 kl. 20:35

6 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ekki misskilja mig Halli, ég er síður en svo eitthvað á móti þessar launalækkun en sló þessu fram því einhver gæti haldið eftir lesturinn að sama gilti með bæjarfulltrúann og borgafulltrúann. Meira að segja varaborgarfulltrúar er margfalt betur launaðir en aðalfulltrúar á Akureyri. Það getur varla talist fullt starf að vera varafulltrúi, nema jú ef aðalfulltrúarnir eru í námi erlendis.

Víðir Benediktsson, 16.12.2008 kl. 20:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband