Byrja á fjármagnstekjuskattinum

Er ekki rétt að byrja á fjármagnstekjuskattinum og sleppa því að hækka tekjuskattinn, sem er alfarið launamannaskattur. Fjöldi fólks í þessu landi hefur lifað í vellystingum síðustu árin af fjármagnstekjum einum saman. Þetta fólk hefur eingöngu borgað 10% skatta af tekjum. Það mætti öllum að meinalausu tvöfalda þennan skatt. Þessi tillaga ríkisstjórnarinnar er til að ausa olíu á eldinn. Ólgan í þjóðfélaginu á eftir að aukast enn.
mbl.is Tekjuskattur og útsvar hækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lúðvík Júlíusson

Ég held að það séu ekki miklar fjármagnstekjur í ár að skattleggja annað en sparnaður einstaklinga.  Til þess að ríkið sé ekki að rýra sparnað með tvöföldun fjármagnstekjuskatts þá þyrfti frítekjumark að vera hátt, nokkur hundruð þúsund.  Þá yrði skattstofninn enn lægri.

Helsti ókostur við fjármagnstekjuskatt er að hann leggst ekki einungis á hreinar fjármagnstekjur, heldur líka á verðbólgu.

Nú er verðbólga 17% og nafnvextir 18%.  Miðað við 100 kr. og..

.. 10% skatt, þá fást 18 kr. í vexti, 17 kr. dragast frá vegna verðbólgu, 1,8 krónur dragast frá vegna skatta.  Þá tapar sparifjáreigandinn 80 aurum.  Skatturinn samsvarar 180%, ekki 10%!!

.. 20% skatt, þá fást 18 kr. í vexti, 17 kr. dragast frá vegna verðbógu, 3,6 krónur dragast frá vegna skatta.  Þá tapar sparifjáreigandinn 2,60 kr.  Skatturinn samsvarar 360%.

Þess vegna er ekki með öllu meinlaust að hækka fjármagnstekjuskattinn.  Venjulegir sparifjáreigendur tapa!  Vonandi viltu ekki leggja meiri birgðar á það?

Lúðvík Júlíusson, 11.12.2008 kl. 11:13

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þetta er rétt hjá þér Lúðvík. Hann skilar kannski ekki stóru fyrir þetta ár. En líklega er óhætt líka að leggja hugmyndir um hátekjuskatt á hilluna. Þessi fjármagnstekjuskattur hefur hins vegar verið mikið óréttlæti síðustu ár.

Haraldur Bjarnason, 11.12.2008 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband