Rugl

Svona fréttir eins og voru á Stöð 2 í kvöld eru svo barnalegar að tekur ekki nokkru tali. Vera að velta upp einhverjum 20 þúsundum á dag í símakostnað er svo fáránlegt. Þetta er örugglega minni símakostnaður en hjá mörgu smáfyrirtækinu. Hvernig væri að horfa á milljarða málin. Svona fréttaflutningur er rugl.
mbl.is Forsetaembættið mótmælir frétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Sæll Halli.

Ég er sammála þér , en er ekki í lagi að þetta komi líka uppá yfirborðið

Einar Vignir Einarsson, 6.12.2008 kl. 21:36

2 identicon

Hvað er það sem á að koma upp á yfirborðið?  Að embættið eyði þessum peningum eða það að fréttin væri hrein árás á forsetann ekki embættið sem slíkt heldur sem persónu???

mbk 

Viðar (IP-tala skráð) 6.12.2008 kl. 21:43

3 Smámynd: Steini Thorst

Hver ætli sé t.d. símakostnaður Fréttastofu Stöðvar 2 á sama tímabili?

Það segir sig sjálft að símakostnaður við Skrifstofu Forseta Íslands sé í hærra lagi svo ég er sammála að þetta er dálítið asnalegur fréttaflutningur.

Steini Thorst, 6.12.2008 kl. 21:43

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Fram að þessu hafði ég haldið að harðsvíraðir sjálfstæðismenn væru þeir aðilar sem vilja sverta forsetann og vildu nota hvert tækifæri til að níða hann og verk hans en það virðist vera að þeir hafi fenið fréttastofu stöðvar 2 í lið með sér.  Var einhver að tala um skítlegt eðli?

Jóhann Elíasson, 6.12.2008 kl. 21:53

5 Smámynd: Guðmundur Björn

Allt í lagi að segja frá þessu; en einstaklega illa unnin og yfirborðskennd frétt.  Segir margt um íslenska fjölmiðla, sem lifa almennt í upphrópunarfréttamennsku og gúrku.

Guðmundur Björn, 6.12.2008 kl. 22:06

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Hallærisfréttamennska

Hólmdís Hjartardóttir, 6.12.2008 kl. 22:25

7 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

 Gott að þetta komi líka uppá yfirborðið.

Góða helgi.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 6.12.2008 kl. 22:55

8 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Voru menn ekki að dunda sér við að selja einskis manns peninga (sparisjóðanna) fyrir 2 árum?

Jón Halldór Guðmundsson, 7.12.2008 kl. 01:43

9 Smámynd: Víðir Benediktsson

Er þá sökudólgurinn fundinn?

Víðir Benediktsson, 7.12.2008 kl. 01:58

10 Smámynd: Sigurveig Eysteins

Það væri gaman að fá að vita hver símareikningar ráðaneytanna væri??? svona til að fá samanburð, forsætisráðaneytið og  utanríkisráðaneytið, gæti það ekki bara verið næsta æsifrétt hjá stöð 2. á morgun. Fólk talar um að það megi leggja forsetaembættið niður og setja það undir forsætisráðaneytið, hver er kostnaður þess ráðaneytis núna ??? og hvað gerist ef það verður sameinað ??? Þessi frétt er fáránleg æsifrétt sem þjónar engum tilgangi. Það er akkúrat núna sem við þurfum að hafa sameiningartákn og að reyna að laga þann skaða sem þjóðin hefur orðið fyrir erlendis.

Sigurveig Eysteins, 7.12.2008 kl. 03:29

11 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Takk fyrir innlitin. Ég vildi nú bara með þessu velta upp fáránleikanum í fréttamennsku.

Haraldur Bjarnason, 7.12.2008 kl. 08:25

12 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Þetta er í þeirra anda. Hasar ! Æsa fólk upp.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 7.12.2008 kl. 16:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband