Skammastu þín Páll

Auðvitað á Páll Magnússon að biðja Íslendinga afsökunar. Hann kemur fáránlega fram í þessu máli og á að skammast sín fyrir. 
mbl.is Vilja að RÚV biðji þjóðina afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tori

Hann er bara hluti af ritskoðunarferlinu hér. Hvað með dagblöðin?

Það þarf öflugt fjölmiðlafrumvarp á Íslandi. sem kemur í veg fyrir svona ástand. Það er ekkert betra að ríkið eigi eitt RÚV frekar en JÁJ hina fjölmiðlana.

Tori, 26.11.2008 kl. 18:28

2 Smámynd: Ingólfur Þór Guðmundsson

Mikill hávaði varð þegar Guðmundur Þóroddsson "tók með sér" gögn þegar hann hætti sem forstjóri Orkuveitunnar.

Að því leytinu eru málin sambærileg, að öllu jöfnu er óleyfilegt að taka með sér gögn þeirra fyrirtækja sem maður vinnur fyrir, þ.e.a.s. eins og G.Pétur hefur gert, hamstrað einhverjar videóklippur úr safni Ríkisútvarpsins.

Ingólfur Þór Guðmundsson, 26.11.2008 kl. 19:07

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Það er nú greinilega ekki sama hjá sumum hvort það er Jón eða séra Jón.

Ragnar Gunnlaugsson, 26.11.2008 kl. 19:55

4 Smámynd: Tori

Mjög dreift eignarhald á öllum fjölmiðlum. Hætta þessu kjölfestufjárfesta bulli, sem var fundið upp af valdhöfum til að koma í hendur vina sinna eignum.

Dreift eignarhald, mest 5% á hvern aðila og ekki J'AJ aðferðina með marga leppa til að koma í veg fyrir að þurfa að taka fyrirtækin yfir, s.s. Teymi, Glitni o.fl.

Tori, 26.11.2008 kl. 20:25

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ingólfur þú ert að tala um gjörólík mál þegar þú líkir þessu við Orkuveituna. Pétur á höfundrarrétt á öllu sínu efni þótt hann hafi verið á launum hjá RÚV. Þetta er sama og með tónlistarmenn. Ef þú kaupir miða á ball eða tónleika áttu ekki efni þeirra. RÚV á ekki efni Péturs þrátt fyrir að borga honum laun. Eignarhald á fjölmiðlum skiptir engu máli í þessu tilfelli Ragnar og Tori.

Haraldur Bjarnason, 26.11.2008 kl. 22:57

6 Smámynd: Tori

Jú eignarhald skiftir alltaf máli Haraldur. það hagar sér enginn svona nm sá sem hefur valdið og telur sig geta brotið á höfundarrétti eða komið fram með dónaskap því hann talar fyrir baklandið.

Tori, 26.11.2008 kl. 23:51

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ok Tori, sammála.

Haraldur Bjarnason, 27.11.2008 kl. 00:00

8 Smámynd: Anna Guðný

Ég er í fyrsta skipti núna að heyra um höfundarétt fastráðinna fréttamanna á Ruv á fréttum þeim sem þeir gera. Hef alltaf heyrt að Ruv eigi efnið. Og ekki bara Ruv, heldur aðrir fjölmiðlar sem eru með fastráðna starfsmenn en ekki sjálfstætt starfandi. Einhver hér sem veit í fljótu bragði hvar ég get fundið lögin um þetta?

Hafðu það gott

Anna Guðný , 27.11.2008 kl. 15:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband