Frá hverju slapp hann

Þetta er athyglisverð fyrirsögn: "Slapp naumlega frá slysi" Var slysið fyrirséð? Slys verður en slys er ekki fyrirsjáanlegt. Munið það moggamenn. Menn sleppa ekki frá slysi,  frekar en þeir forði slysi.


mbl.is Slapp naumlega frá slysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Á þetta þá frekar að vera "óhapp"?

Einhverntíma (ca. 35 ár síðan) var umferðaráróður og slagorð í tveimur hlutum. Man ekki fyrri hlutann en seinni var "-vörumst slysin" Þó slys séu ekki fyrirséð, þá er hægt að forðast aðstæður sem geta ollið slysi. Eins getur slys átt sér stað og viðkomandi getur forðast á síðustu stundu að slasast. Slasa-slys.

Gunnar Th. Gunnarsson, 22.11.2008 kl. 23:27

2 Smámynd: Steingrímur Helgason

Var ekki eitt gott 'zlagorð' í þá tíma, "Vörumzt vinztri slyzin!" drengir, eða er mig að mizminna ?

Steingrímur Helgason, 23.11.2008 kl. 01:00

3 identicon

Frá hverju slapp hann?    "Slapp naumlega frá því að slasast."  Er það ekki ljóst?  Kemur fram í frétttini.   Sá sem sleppur við að slasast hlýtur að  sleppa frá slysi.

Guðjón Rúnar (IP-tala skráð) 23.11.2008 kl. 11:38

4 Smámynd: Magnús Jónsson

Fyrirsögnin er klaufalega orðuð svo mikið er ljóst, Vörubílstjórinn slapp með skrekkinn, en fyrir utan það er fréttin að sjálfsögðu um það að vörubifreið hafi oltið ofan í höfnina, ekki sat.

Magnús Jónsson, 23.11.2008 kl. 12:06

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jú fyrirsögnin er klúður en fréttin að öðru leiti í lagi.

Haraldur Bjarnason, 23.11.2008 kl. 12:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband