Samt fimmföld laun ríkisstarfsmanna

Þrátt fyrir að vera 1.750 þúsund eru laun þessara bankastjóra allt of há. Miðað við stjórnendur hjá ríkinu yfirleitt ætti að setja markið við 1.250 þúsund þá eru þeir með um milljón yfir flestum almennum ríkisstarfsmönnum. Það er yfirdrifið nóg fyrir stjórnendur að vera með fimmföld almenn laun. Auðvitað ætti að setja lög um að stjórnendur megi aldrei vera með meira en tvöföld laun undirmanna sinna. Það er sanngjarnt hjá ríkinu og eðlileg laun almenns ríkisstarfsmanns í dag ættu því að vera 875 þúsund sé miðað við bankastjórana.
mbl.is Bað um launalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Nú kem ég þér á óvart.....er nebblega sammála

Hólmdís Hjartardóttir, 25.10.2008 kl. 19:17

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Tíföld laun hinna lægst launuðu.

Víðir Benediktsson, 25.10.2008 kl. 19:18

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Rétt Víðir, en ef við miðum við sjómenn þá var nú í eina tíð skipstjórinn með tvo hluti. Það hefur hækkað en ég man eftir umræðu um það einu sinni að stjórnendur hjá ríkinu væru aldrei með meira en tvöföld meðallaun undirmanna.

Haraldur Bjarnason, 25.10.2008 kl. 19:30

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég verð nú að segja, að mér finnst mest um vert að það fáist þannig fólk að þessum stofnunum, AÐ VIÐ GETUM TREYST ÞEIM, mér finnst ekki meginmálið fyrir þrjár manneskjur hvort laun eru 1200 eð 1750 þúsund. Ég vil geta verið viss um að viðkomandi sé hlutlaus starfsmaður okkar allra, það er það sem öllu skiptir.

Af með alla andskotans flokksdindla, hverju nafni sem nefnast, út með þá alla, NÚNA. Þeirra galvitlausu vinnubrögð hafa komið okkur í núverandi stöðu.....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.10.2008 kl. 21:32

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Hafsteinn, kr. 550.000.- eru nú bara helvíti góð laun, ég vildi að ég hefði þau.

Haraldur, ég er líka sammála

Sigrún Jónsdóttir, 26.10.2008 kl. 00:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband