Auðvitað á þjóðin að kjósa um þetta

Auðvitað á að setja af stað þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að ESB. Það er löngu vitað og slík atkvæðagreiðsla hefði átt að fara fram löngu fyrir þær hremmingar sem nú ganga yfir.  Þröngsýni margra stjórnmálamanna hefur komið í veg fyrir að þjóðin fái að segja sitt um þetta nauðsynlega mál. Það verður svo bara að koma í ljós hver vilji fólks er.
mbl.is 70% vilja þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nei Ragnar þessu hefði þurft að breyta fyrir nokkrum árum.

Haraldur Bjarnason, 18.10.2008 kl. 09:04

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

að sjálfsögðu á að kjósa um þetta

Hólmdís Hjartardóttir, 18.10.2008 kl. 11:54

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Varðandi skoðanakönnun Gallup bendi ég annars á þessa færslu:
Það var meiri áhugi fyrir ESB-aðild og aðildarviðræðum í byrjun árs 2002

Þá vildu 91% aðildarviðræður samkvæmt Gallup, ekki aðeins þjóðaratkvæði um það hvort hefja eigi aðildarviðræður eins og skoðanakönnun Gallup segir að tæp 70% vilji nú. Nokkru færri vildu auk þess Evrópusambandsaðild í byrjun árs 2002 en nú.

Og svo snerist allt við ári síðar.

Hjörtur J. Guðmundsson, 18.10.2008 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband