Fara varlega í þessum efnum

Einhverjir Ameríkanar vilja nú kaupa "tekjustrauma" Landsvirkjunar. Hvað þýðir þetta? Vissi um að miklir straumar eru beggja vegna stöðvarhúsa virkjana en tekjustrauma hef ég ekki heyrt um áður. Er þetta einhvers konar afsal virkjana eða nokkurs konar leiga? - Kannski er þessi kostur athyglisverður í 10-15 ár en varla er á vísan að róa, fyrst Kanarnir eru áfjáðir í þetta. Eflaust er þetta freistandi fyrir ráðamenn að fá einhverja slummu af dollurum á einu bretti. - Held samt að vissara sé að fara varlega í þessum efnum.


mbl.is Fjárfestingarsjóður vill yfirtaka rekstur virkjana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

líst ekkert á þetta   þessir greinilega veðja á hækkun orkuverðs

Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 19:46

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

átti að vera veðja á

Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 19:47

3 Smámynd: Þorsteinn Hilmarsson

Það er óþarfi að hafa áhyggjur af þessu "plotti"!  Sá fiskar sem rær og að eigin frumkvæði vildu þessir aðilar kynna Landsvirkjun sína starfsemi.  Að sjálfsögðu var tekið vel á móti þeim eins og öðrum gestum.  Með það fóru þeir til síns heima. 

 Sem betur fer stendur Landsvirkjun vel - fyrirtækið er starfrækt í  dollurum  svo að gengisfall krónunnar undanfarna mánuði hefur þar ekki áhrif.  Vissulega eru skuldirnar á alþjóðlegum mörkuðum miklar en 3/4 teknanna eru í erlendri mynt.  Handbært fé Landsvirkjunar og tekjur duga til að sjá fyrir öllum skuldbindingum fyrirtækisins út næsta ár a.m.k.

Þorsteinn Hilmarsson, 15.10.2008 kl. 20:19

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ég treysti engum.

Víðir Benediktsson, 15.10.2008 kl. 21:29

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ég skil þetta svo að eftir einhverju sér að slægjast hjá Kananum. Landsvírkjun er traust  fyrirtæki í þjóðareigu og nú veitir okkur ekkert af að halda vel í það fyrirtæki. Landsvirkjun hefur yfir mörgum og traustum stjórnendum að ráða sem ég veit að láta ekki glepjast af einhverjum gylliboðum núna.

Haraldur Bjarnason, 15.10.2008 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband