Þjóðnýtingin orðin algjör

Jamm þá er bara Kaupþing eftir og þjóðnýtingin orðin algjör. Davíð segir svo að hann hafi varað við þessu, Þvílikt bull. Hann stóð fyrir einkavæðingunni og leyfði útrásargæjunum að vera frjálsum, án nokkurra skilyrða.
mbl.is FME tekur Glitni yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

DO talaði eins og hvítþveginn fermingardrengur. Fuss.  En þjóðin hefur áttað sig á að hann er yfir-forsætisráðherra.

Hólmdís Hjartardóttir, 7.10.2008 kl. 23:58

2 identicon

Ætli það hafi verið margir kostir eftir með Glitni, efast um það, hluthafar bíða endalaust með hluthafa fund og það hefur líklega stefnt í óefni.

En Fjármálaeftirlitið/seðlabankinn/ríkistjórnin hefðu auðvita átt að hafa meiri bönd á "útrásargæjunum" og hafa smá stjórn á þessu, finnst samt rosalega erfitt að kenna einum manni um þetta allt saman þó svo að hann hafi ráðið flestu.

Raunverulegu sökudólgarnir eru þessir stórjaxlar sem héldu að þeir gæu endalaust grætt með því að veðsetja nýjar eignir til að kaupa fleiri og svo koll af kolli, það væri réttast að frysta alla bankareikninga þeirra og láta peninginn renna í ríkiskassann!

Andrir (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 00:16

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ég er að sjálfsögðu á því að útrásarvíkingarnir séu sekir líka og að þeir eiga að borga sínar skuldir.....ekki við.  Þar er ég sammála DO en hann setti leikreglurnar.....og brást þeim skyldum að hafa eftirlitið í lagi

Hólmdís Hjartardóttir, 8.10.2008 kl. 00:40

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þvílíkt bull og þetta "Kastljós-viðtal" við Davíð Oddsson hefur ekki verið borið á borð okkar í langan tíma og Sigmar Guðmundsson sem átti að vera STJÓRNANDI viðtalsins lét Davíð fara með sig eins og eitthvað leikfang.  Davíð fékk að segja og gera það sem honum sýndist.

Jóhann Elíasson, 8.10.2008 kl. 07:47

5 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Er fólk enn að missa sig ofan í þennan pytt.

Hvers vegna talar enginn um þá menn sem breyttu kjarnafyrirtækjum eins og EIMSKIP í fjárglæfrafélög? Samskip eiga ekkert skip í dag td., hvert fyrirtækið af öðru var rúið og mjólkurkýrnar seldar útvöldum og svo aftur leigðar til fyrirtækisins. Skipin skráð í útlöndum ( ekki er DO þar).

Hvers vegna að eyða orkunni í svona einfaldanir? Svona umræða skilar bara meiri glundroða og elur á óþarfa hatri. Davíð hefur víst varað við þessu. Hann var á móti ofurlaunum og kaupréttarsamningum og tók sitt fé út úr bankanum í mótmælaskyni. Það eiga allir að njóta sannmælis. Ekki er ég aðdáandi né hatursmaður DO eða annara.

Hvað með veldi Magnúsar Kristinssonar? Samskip versus N1?

Vilja menn í alvöru umræður á þessu kaliberi? Er þetta kjarninn eða hismið?

Bara spyr mínir kæru félagar.

Einar Örn Einarsson, 8.10.2008 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband