Tilkynning til sjófarenda og annarra!

Sjómenn úti fyrir Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum eru beðnir að halda sig við Faxaflóann, það sem eftir er árinu vegna peningaleysis hjá Landhelgisgæslunni. Landhelgisbrjótar haldið ykkur í landi.  Sömuleiðis eru afbrotamenn beðnir að vera aðeins við iðju sína milli kl 8 og 16 vegna peningaleysis hjá lögreglunni. Svona er staðan, en hvers vegna? - Það er nefnilega þannig að peningarnir eru til. Ríkissjóður var gerður upp með hagnaði. Hins vegar voru allar áætlanir fyrir opinberar stofnanir gerðar fyrir síðustu áramót og þá reiknaði enginn með 15% verðbólgu, falli krónunnar og hærra orkuverði. Þetta á að vera einfalt að laga.


mbl.is Skipum Landhelgisgæslu lagt til að spara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Góður punktur Halli, þetta er óskiljanlegt.  Uppsjávarskipin eru við 200 mílna mörkin og allur togaraflotin verður fyrir Vestan í vetur.  "Fínt öryggi það".

Einar Vignir Einarsson, 20.9.2008 kl. 10:23

2 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Peningarnir eru til - en þeir sem hafa veskið til vörslu forgangsraða með einkar "dularfullum" hætti, svo ekki sé meira sagt.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 20.9.2008 kl. 10:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband