Nú er það gullið

Enn og aftur kemur íslenska liðið manni þægilega á óvart. Strax eftir 5 mínútur komnir í 5:0 og eftir það var á brattann að sækja fyrir Spánverjanna allan leikinn þótt þeir næðu tvisvar að jafna fór íslenska liðið alltaf fram úr aftur og að enda með 6 marka mun er stókostlegt. Þetta gerðist þrátt fyrir að markvörður Spánverjanna verði hvert skotið á fætur öðru úr hraðaupphlaupum og íslendingar væru oftar en ekki einum færri inn á vellinum. - Glæsilegt! Nú er það gullið
mbl.is Íslenska þjóðin fagnar sigri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þvílík snilld! Má segja að dómgæslan hafi líka verið svolítið á móti okkur, en það virðist ekkert geta stöðvað þetta lið.

Spurning hvort við tökum Frakkana ekki bara eins og á HM, með 10 marka mun :)

Andrir (IP-tala skráð) 22.8.2008 kl. 18:04

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég mundi nú ekki veðja á 10 marka mun gegn Frökkum, þeir eru jú komnir í úrslitaleik eins og við. En mér virðist nú allt geta skeð núna og þeir gætu alveg haft Frakkana og það getur fyrr verið gott en 10 mörkin... En þetta er bara snilld það er rétt...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 22.8.2008 kl. 18:30

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ég fór bara upp í hæstu hæðir, ég varð svo glöð, ánægð og stolt að ég fór að grenja þegar ein mínúta var eftir af leiknum og ég hef aldrei verið svona stolt af því að vera Íslendingur

Lilja G. Bolladóttir, 23.8.2008 kl. 00:08

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

znilllld

Hólmdís Hjartardóttir, 24.8.2008 kl. 01:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband