Meirihluti á brauðfótum

Það er þá til staðfast fólk í hreppsnefndarmálum Reykjavíkurhrepps. Þessi kona er greinilega ekkert allt of upptekin af valdapotinu. Staðan er þá sama í hreppsnefndinni nú og var fyrir breytingu. Meirihlutinn á brauðfótum.
mbl.is Marsibil styður ekki nýjan meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott hjá Marsibil. Vonandi stendur hún við orð sín !

Stefán (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 09:10

2 identicon

Þetta er einkennilegt. Til hvers heldur Marsibil að Framsóknarmenn hafi stillt henni upp? Til að halda áfram þeirri dauðagöngu sem þeir hafa verið í síðan tjarnarkvartettinn var myndaður, en sá gjörningur nánast þurkaði Framsóknarflokkinn út af kortinu, eða er þessi kona að daðra við einhvern annann flokk? Eða þorir hún ekki að axla ábyrgð? Til að ná árangri verður fólk að þora að axla ábyrgð en stinga ekki hausnum í sandinn eins og Marsibil gerir, hún er fallinn með fjóra komma níu.

Ómar Sigurðsson (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 09:18

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er nákvæmlega það sem hún Marsibil er að gera, SÝNA ÁBYRGÐ. Það mættu fleiri taka það fram yfir valdabröltið.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 15.8.2008 kl. 09:42

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Góð hún Marsibil

Hólmdís Hjartardóttir, 15.8.2008 kl. 12:22

5 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Hún á eftir að hagnast á því að sýna ábyrgð á ögurstundu. Óx um heilan helling í áliti hjá mér fyrir bragðið, og sem beturfer er en til fólk í stjórnmálum sem sýnir vit.

Sigurbrandur Jakobsson, 15.8.2008 kl. 16:49

6 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Marsibil sýnir að hún er heil og lætur ekki glepjast í valdafíkninni.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 15.8.2008 kl. 20:55

7 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Ómar Sigurðsson, þú ert fallinn í mínum dómi, niður í 4,9.... kemst ekki neðar né ofar. Algjörlega fáránleg þessi orð þín, sem ég vona að eigi eiginlega bara að vera grín.... ertu ekki að fatta neitt??

Ég er ánægð með þessa konu, það mættu fleiri taka hana sér til fyrirmyndar, kona sem þorir að segja það sem henni finnst og hvernig henni líður, án þess að hugsa um pólitískar afleiðingar. Þær eiga eftir að koma í ljós en næsta víst er að Marsibil mun marsera inn í hvern þann flokk sem hún kýs..... og mun verða velkomin.... sterkur pólitískur leikur hjá konu í deyjandi flokki...... svona á að skipta um flokk, er það ekki?! Eða hvað....?

Lilja G. Bolladóttir, 16.8.2008 kl. 04:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband