Neinn hefur ekki undan að breyta

Já greinilega misjafnt verð hjá Neinum. Tók í dag bensín á Akranesi á, að ég held, 162 lítrann. Kannski eru þeir búnir að átta sig á skilaboðunum á skiltinu við vegamótin á Akranesi eins og kom fram hjá mér í síðustu bloggfærslu. - Eða þá að þeir Neinsmenn hafa ekki undan að breyta.
mbl.is Misjafnt bensínverð á stöðvum N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Vélstýran var að blogga um að N1 væri að sölsa undir sig dekkjamarkaðinn líka.

Maður er alveg rasandi á þessu öllusaman. Allt frelsið er að éta sig sjáft. Undarleg þessi veröld.

Einar Örn Einarsson, 9.8.2008 kl. 00:57

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Einar þeir eiga alla vega orðið dekkjaverkstæðið hér á Skaganum, sem Gaui Hjalta átti í eina tíð og síðan Grétar og Valdi Lár. Það er alla vega merkt Neinum. Hef svo sem ekki þurft að fara þangað ennþá og veit ekki hvort þjónustan er sú sama en held samt að fyrrum eigendur vinni þar, þá er þetta í lagi.

Haraldur Bjarnason, 9.8.2008 kl. 01:02

3 Smámynd: Einar Örn Einarsson

Hver fjárinn. Ég er svo mikið úti á sjó að ég næ ekki að fylgjast með þessu, en eins og ég kommentaði hjá vélstýrunni þá yrði ég ekki hissa að bónussvínið yrði komið á varðskipin einn daginn þegar ég mæti til skips.

Einar Örn Einarsson, 9.8.2008 kl. 01:08

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Bíð nú viið ?  Ef að ég man rétt til þá er 'boggan' löngu lögzt í brotajárn ?

Taka benzín á nezi Akra, viljandi?

Kví ?

Steingrímur Helgason, 9.8.2008 kl. 01:47

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Zteingrímur, boggan flytur nú einhverja borkalla Zuður í höfum. Ertu búin með helvítis Zkeljazeiðið zem þú hefur verið að drekka í kvöld á þessum zúpu dögum þarna út með firði. Mínir venir hér á Zkaga Akra framleiða nú Zeið úr hvönn sem gagnazt öllum er míga þurfa oftar en tvizvar á dag og þezzu svelgi ég nú í mig.

Haraldur Bjarnason, 9.8.2008 kl. 01:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband