Allt kvótakerfinu að kenna

Engan þarf að undra að fólk vanti til vinnu á Vestfjörðum. Þaðan hefur fólk flutt á burtu á undanförnum árum. Líklega er það allt kvótakerfinu að kenna því Vestfirðingar seldu frá sér lífsbjörgina í stórum stíl og þeir sem yfir henni réðu lifa eflaust góðu lífi núna og afkomendur þeirra.  - En......einhversstaðar annarsstaðar.
mbl.is Ekkert atvinnuleysi á Vestfjörðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur H Þorleifsson

Bara svo það sé á hreinu þá er ekki unnið minna af fiski hér fyrir vestan en var áður en kvótakerfið var sett á. Hér á Suðureyri er veriðað vinna 5-6 þúsund tonn á ári. Málið er bara það að stöðug þróun í veiðum og vinnslu orsakar það að það þarf mikið færra fólk til að afkasta sama magni og áður var.

Ingólfur H Þorleifsson, 30.7.2008 kl. 21:38

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hvers vegna er þá alltaf þessi grátur yfir kvótakerfinu þarna á mínum upprunaslóðum?

Haraldur Bjarnason, 30.7.2008 kl. 21:43

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ingólfur, ekki hef ég heyrt meira bull um dagana, þú ert hreinlega að segja að menn fyrir vestan, sem hafa tjáð sig um hvernig ástandi er vegna kvótakerfisins, hafi allan tímann verið að ljúga. þeir viti bara ekkert í sinn haus.  Var einhver að tala um að vera veruleikafirrtur?

Jóhann Elíasson, 30.7.2008 kl. 23:01

4 Smámynd: Steingrímur Helgason

Ekki þarf nú lángt aftur að fara í lestri bloggeríis sjálfblinda Ingólfs þessa 'Súgandasjallaforkólfs' til að hann lýsi sjálfur skerðíngum einhverjum þar.

Innanfótarskot.

Steingrímur Helgason, 31.7.2008 kl. 00:21

5 Smámynd: Gulli litli

Góda hlidin á landsbyggdaflóttanum er kannski minnkandi atvinnuleysi á þeim stödum sem flutt er frá.....enginn eftir til ad vera atvinnulaus...

Gulli litli, 31.7.2008 kl. 00:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband