Hvar er þessi gamla götumynd?

Hvaða gömlu götumynd eru menn alltaf að tala um? Ég labbaði Laugaveginn fyrir stuttu og allt næsta nágrenni. Laugavegur og Hverfisgata eru hrærigrautur bygginga af öllum mögulegum gerðum. Þau fáu gömlu hús sem eftir standa hafa ýmist verið skemmd með seinni tíma breytingum eða þá þeim hefur ekki verið haldið við og eru því ekkert augnayndi. 
mbl.is „Skýrir hvers vegna síðasti meirihluti sprakk"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Það er helst uppá Grettisgötu, Njálsgötu og Bergþórugötu, sem maður sér heillega götumynd í aldamótastílnum 1900.

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.7.2008 kl. 10:27

2 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Bergþórugatan kannski í 1920 stílnum

Gunnar Th. Gunnarsson, 30.7.2008 kl. 10:29

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sammála þér Gunnar. Það er allt annað og betra ástand á húsum þar.

Haraldur Bjarnason, 30.7.2008 kl. 10:34

4 identicon

Laugavegurinn er stórt kaos rétt eins og borgarstjórinn, en þann fyrrnefnda væri þó hægt að lagfæra með glæsibyggingum eins og Listaháskólanum. Þeim síðarnefnda verður sennilega ekki hægt að bjarga úr þessu.

Stefán (IP-tala skráð) 30.7.2008 kl. 11:43

5 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Það má vel vera að einhverjir sjái eitthvað merkilegt út úr heildarsvip Laugavegar. Mér finnst hann aftur á móti hrærigrautur allavegna húsa, kofa og stórhýsa.... þess vegna spyr ég eins og margir... hvað á að varðveita ?? Þetta eru smá stubbar hér og þar...sem eru samstæðir en mest er þetta hrærigrautur og lítt fyrir augað.

Jón Ingi Cæsarsson, 30.7.2008 kl. 12:49

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sammála ykkur Stefán og Jón Ingi. Ég get ómögulega séð einhverja 19. aldar götumynd út úr Laugaveginum. Hann er bara kaos og hrærigrautur. Annars þarf ekkert að vera að vandræðast með þennan listaháskóla. Hann getur verið hvar sem er á landinu enda er það mjög algengt að listamenn sæki sinn innblástur út fyrir 101 Reykjavík.

Haraldur Bjarnason, 30.7.2008 kl. 15:06

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nei Anna Kjarval ætti það skilið

Haraldur Bjarnason, 30.7.2008 kl. 22:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband