Það eru fleiri hissa

Já eiginkona Paul Ramses segir að ítalska lögreglan hafi verið hissa þegar íslenskir lögreglumenn komu með hann til Ítalíu. - Þetta var allt samkvæmt lögum og sáttmálum, var það ekki? - Björn dáti veit ekki neitt og Solla ver sig með einhverjum vandræðagangi. - Að ætlast til þess að maður sem flýr undan morðhótunum og á varla afturkvæmt til heimalandsins sé með einhverja pappíra og stimpla á hreinu og að hann hafi átt að fljúga beint til Íslands frá Kenýa er svo vitlaust að nær ekki nokkru tali. - Geir og Solla, segiði bara að þetta hafi verið klúður og bjargið manninum aftur hingað. - Það eru fleiri hissa en Ítalir!
mbl.is Ramses farinn af flugvellinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: tatum

Getur verið að ef Paul hefði fengið að vera á Íslandi sem pólitískur flóttamaður liti umsókn í öryggisráðið illa út fyrir "ríkistjórnarparið" (draumur þeirra beggja).  Það er eitthvað þarna sem ekki hefur verið sagt frá!  Það á að fara að flytja hér inn flóttamenn vegna lélegrar aðstöðu sem þeir búa við, en Paul var kominn til landsins frá ömurlegum aðstæðum og sendur til Ítalíu!  Það er eitthvað loðið við þetta mál. Paul hefði verið betur settur sem tengdasonur "ráðherra" þá hefði hann hlotið flýtimeðferð.  Þetta er farið að lykta!

tatum, 5.7.2008 kl. 07:42

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

...mig grunar svoldið að þetta loðna sem þú talar um sé raunhæft...allt gert til að komast í þetta bölvað öryggisráð...meira að segja hefur heyrst að Mogabwe (vonandi rétt stafsett) ætli að styðja Ísland inn í þessa vitleysu....þetta er verulega ljótt......hvað er þetta fólk, sem við kusum yfir okkur að hugsa??

Haraldur Bjarnason, 5.7.2008 kl. 07:55

3 Smámynd: Björn Heiðdal

Ég elska Björn Bjarnason.  Í fyrsta lagi heitir hann flottasta nafninu. Í öðru lagi er hann með stór eyru sem hann getur flogið á og sparað þannig bensín og mengun.  Í þriðja lagi bullar hann svo mikið að hægt væri að knýja tvö risa álver með því.

Björn Heiðdal, 5.7.2008 kl. 08:29

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Þetta er ólíkindamál....

Hólmdís Hjartardóttir, 5.7.2008 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband