Sjónvarpið tók við sér

Sjónvarpið komið af stað með aukafréttatíma. Gott hjá þeim en svoldið seinir á ferðinni miðað við viðbragðsflýti Sjónvarpsins þegar hryðjuverkin voru framin í Bandaríkjunum...en Stöð 2 er ennþá með teiknimynd!!!
mbl.is Flokkast sem Suðurlandsskjálfti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Benedikt V. Warén

Halli......sé sáralítinn mun á því að vera með enn einn útvarpsþáttinn um málefnið, - hér útvarpsþátt í sjónvarpinu

Fyrsti klukkutíminn hjá sjónvarpinu var eingöngu með Boga í mynd talandi við menn um víðan völl. 

Þetta hefur lítið lagast við að oheffa RUV, það versnar frekar, því nú þarf að sýna hagnað.  Engin tæki tiltæk að varpa myndum áfram, hvorki frá Hveragerði, Selfossi né úr þyrlu. 

Heitasta myndin var þegar þingmaður gerði hlé á máli sínu aðstoðarmaður forseta þingsins flúði af hólmi og forseti stóð upp. 

Benedikt V. Warén, 29.5.2008 kl. 17:55

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Auðvitað er þetta satt og rétt hjá þér Pelli og þetta sýnir kannski enn og aftur hve sjónvarpið er langt á eftir í tækni nútímans. Það er fullt af fólki út um land allt með góðar vélar til að taka myndir. Auðvitað átti frétastofa sjónvarps að vera búin að koma sér upp tengslanet. Það er þannig að hlutirnir gerast ekki allir í Reykjavík en áherlsan þarna hjá RÚV síðustu ár hefur verið á verðbréf og markaði. Ekki á það sem skiptir máli fyrir fólk: Manstu eftir atvikinu Pelli þegar nærri var búið að keyra niður forsetann á Fagradal vegna fáránlegrar ákvörðunar sýslumanna að heilsa honum á sýslumörkunum í svartaþoku. Þá var reynt að hengja vörusbílstjórann sem raunverulega bjargaði því sem bjargað var. Ef við sem störfuðum á RÚV á Austurlandi á þessum tíma hefðum ekki verið með sambönd og menn til staðar allsstaðar hefðu vörubílstjórinn verið dæmdur en ekki löggan fyrir það kæruleysi að vera ekki með blikkljós á! - Ég man eftir mörgum svona dæmum en þegar við Inga Rósa byrjuðum með svæðisútvarpið fyrir austan vorum við með 14 fréttaritara á Austurlandi til að halda tengslum og fá allar upplýsingar strax. Ég held að það sé bara fréttaritari á einum stað í dag. - Allt út af hagræðingu og sparnaði. - En RÚV gegnir mikilvægu öryggishlutverki og það sýnir sig vel í dag.

Haraldur Bjarnason, 29.5.2008 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband