Svona menn mega ekki vopnast rafbyssum

Það er ótrúlegt að sjá þetta myndband en þó ætti svona lagað ekki að koma á óvart eftir gasævintýrið. Það er greinilegt að mikið vantar upp á að þessi lögreglumaður sé í fullu jafnvægi. Svo vekur athygli hve margir lögegluþjónar eru þarna í versluninni.

Nei, fyrir alla muni farið ekki að láta rafstuðsbyssurnar í hendurnar á svona mönnum. Það vantar greinilega eitthvað í námskrána í lögregluskólanum og kannski þyrfti að kanna betur andlegan styrk þeirra sem ganga í lögregluna. Þar þurfa menn að vera andlega sterkir til að takast á við erfið verkefni. Þetta dæmi sýnir ótrúlegan veikleika og kannski einhverja innibirgða minnimáttarkennd, sem brýst út við það að klæðast lögreglubúningi.


mbl.is Lögregla fer yfir atvik í 10/11
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

engar rafbyssur takk

Hólmdís Hjartardóttir, 27.5.2008 kl. 14:34

2 Smámynd: B Ewing

Nákvæmlega.  Rafbyssur eru stórhættulegar í höndum svona manna.

B Ewing, 27.5.2008 kl. 14:39

3 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Maður setur ekki hendur um hálsinn á fólki,það er bara rugl,þarna er lögreglumaðurinn til skammar. Eingar rafbyssur fyrir íslenska lögreglu.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 27.5.2008 kl. 15:51

4 identicon

Mikið rétt, það þarf eitthvað að herða á inntökuprófum í lögregluskólann, og bæta þar við mannlegum samskiptum.

Það verður æ meira um lögreglumenn sem virðast vera í einhverjum hefndarhug útí heiminn.

Andrir (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 18:17

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Þetta er með ólíkindum, sem betur fer eru flestir lögreglumenn sómamenn en því miður fær öll stéttin skellinn þegar svona menn taka lögin í sínar hendur. Er viss um að flestum vel gerðum lögreglumönnum líður ekki vel með að horfa upp á þennan óskapnað.

Víðir Benediktsson, 27.5.2008 kl. 19:23

6 Smámynd: Einar Vignir Einarsson

Halli þegar við vorum púkar var margt brallað.  Ég man eftir mörgum prakkarastrikum sem maður gerði.  En við vorum aldrei með svona kjaft við fullorðna eins og þessir krakkar eru með í dag. 

Ég sé heldur ekki að fólk úti í heimi sé að haga sér svona eins og sumir þessara krakka eru að haga sér.  það er ekkert af því að lögregla vopnist, það er orðið stór hættulegt að ganga um götur bæjarins.

Einar Vignir Einarsson, 27.5.2008 kl. 19:45

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nenni, auðvitað var margt brallað áður fyrr og ég get ekki séð á þessu myndbandi að þessi strákur hafi gert neitt af sér annað en svara spurningu spurningu löggunnar. Fyrir það fær hann hálstak, sem er auðvitað lífshættulegt athæfi. Ef lögregla ætlar að vera með svona ofbeldi eins og við höfum orðið vitni að núna þá kallar það á aukið ofbeldi. Vopnaburður lögreglu kallar á vopnaburð þeirra sem ætla að brjóta af sér. - Ég vil sjá svona menn eins og Stebba löggu á Skaganum, Svan Geirdal og þessa karla sem kunnu að tala ungmennin til, gæti nefnt fleiri. - Þarna gerir löggan árás á strák, sem engin sönnun er fyrir að hafi gert neitt af sér. - Horfðu svo á hinar löggurnar, mér sýnist þessi í bláu skyrtunni reyna aðeins að bera klæði á vopnin en hinir rjúka til . Ofbeldi lögreglu kallar á aukið ofbeldi. - Af hverju heldurðu að byssueign Bandaríjamanna sé sú sem hún er? - Getur ekki verið að það hafi eitthvað vopnaburð yfirvaldsins, lögreglunnar, að gera?

Haraldur Bjarnason, 27.5.2008 kl. 20:04

8 Smámynd: Jóhann Elíasson

Hjartanlega sammála þessari færslu.

Jóhann Elíasson, 27.5.2008 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband