Kviknaði í án íkveikju??????

Úfff...þessi fjári gengur bara yfir eins og eldur í sinu!!! - Kviknaði í við bæjarmörkin á Skaganum en í fréttinni segir að samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hafi þetta ekki verið af völdum íkveikju....Woundering ...Ég bara spyr. - Hvernig kviknar í án íkveikju??????
mbl.is Sinueldur kviknaði á Akranesi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Halli minn, nú held ég að þú sér farinn að hártoga. Annars fín færsla hjá þér á undan með Öryggisráðið.

Víðir Benediktsson, 30.4.2008 kl. 13:40

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Nei Víðir þetta er ekki hártogun. Eitthvað þarf til að kveikja í. Hvort það er af ásettu ráði eða ekki er annað mál. Ekkert kemur fram um það í þessari frétt.

Haraldur Bjarnason, 30.4.2008 kl. 14:35

3 identicon

Finnst þetta ekki beint villa sem skiptir máli, veit ekki alveg hvernig ætti annars að orða þetta, efa um að einhver misskilji þetta :)

Andrir (IP-tala skráð) 30.4.2008 kl. 15:01

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Lestu fréttina. "ekki var um íkveikju að ræða" - Það sem vantar er hvernig í ósköpunum kviknaði þá í.

Haraldur Bjarnason, 30.4.2008 kl. 15:27

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Íkveikja=kveikja í (ásetningur)

Kvikna í=ekki ásetningur

Svona hef ég alltaf skilið þetta.

Víðir Benediktsson, 30.4.2008 kl. 16:05

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ég hef kannksi ekki skýrt þetta nógu vel áðan hvað ég átti við. Auðvitað getur þessi skilningur þinn staðist. Hann þarf þó ekki að vera sá eini rétti, ég finn ekkert um þetta í orðabók hjá mér. En það ætti að vera ljóst að ekki kviknar í sinu af sjálfu sér. þess vegna vaknar spurning um hvernig kviknaði í. Það þurfa ekki að vera einhver strákapör. Það getur verið fyrir kæruleysi, sígarettuglóð, bóndi missir tök á eldi, út frá einhverjum öðrum eldi. Hvað sem er. Það er þetta sem vantar. Eða þá að einfaldlega ekki er vitað um eldsupptök, þess er ekki getið heldur. - Annars eru þetta skemmtilegar vangaveltur.

Haraldur Bjarnason, 30.4.2008 kl. 16:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband