Ekkert gas! gas! gas! en tókst samt

Krakkarnir hlýddu og ekkert gas notað bara gamla góða aðferðin að ræða við fólk af skynsemi. Ofbeldi borgar sig aldrei og á engan rétt á sér. -  Þetta eru ágæt skilaboð til þeirra sem halda að allt sé leyst með öflugri sérsveitum og jafnvel hersveitum. - Venjuleg gamaldags lögga, yfirveguð og skynsöm, það er málið.


mbl.is Rýmingu lokið á Miklubraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þegar menn hlýða þarf ekki að nota gas. Það var bara því miður ekki þannig í Norðlingaholtinu og eina leiðin til að brjóta upp mannfjöldann og koma honum burt var fyrst að hóta gasi og síðan sprauta því.

Sigurgeir (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 16:16

2 identicon

Akkúrat málið Sigurgeir. Ef almenningur fer að fyrirmælum lögreglu verður ekkert vandamál.

Bunki (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 16:22

3 Smámynd: Brynjar Jóhannsson

Hjartanlega sammála þér. Haraldur... Mýktin leysir miklu meiri vand en býr til.

Brynjar Jóhannsson, 25.4.2008 kl. 16:22

4 identicon

Ég veit nú ekki hvað þessir krakkar voru að gera. Átti leið þarna hjá áðan og það fór ekki betur en svo en að tveir strákar úr þessum hópi grýttu eggjum í rúðuna hjá mér. Ef þeir voru að mótmæla einhverju þá kom það eldsneytisverði eða hagsmunum almennings ekkert við. Bara einhver athyglissýki. Eins mikið og maður vill fá skárra verð fyrir eldsneytið þá er maður farinn að óska þess að þessum asnaskap fari að linna.

Jón (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 16:25

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Tek undir það sem Brynjar segir að mýktin leysi miklu meiri vanda en hún býr til. Ofbeldið býr til vanda en leysir engan vanda. Ofbeldið er jafn slæmt hvort sem það er gert í nafni laga eða ekki. Það býr alltaf til vanda. 

Haraldur Bjarnason, 25.4.2008 kl. 16:28

6 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jón það hefur bara verið einhver galsi og vorhugur í krökkunum. Þau fá ekki útrás fyrir svoleiðis hvar sem er.

Haraldur Bjarnason, 25.4.2008 kl. 16:29

7 identicon

Segir bara til um þroska mismun á þessum mótmælanda hópum. Já - ég er ekki í nokkrum vafa að ungmenni Íslands hafi að meðallagi meiri andlegan þroska en vörubíllstjórar.

jon (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 16:44

8 identicon

Auðvita er "ofbeldi" enginn lausn en það er nú búið að reyna hina aðferðina býsna lengi á þessa vörubílstjóra.

Tek að vissu leyti undir með Jóni, ungmennin virðast hafa aðeins meiri þroska í þessu, eða kannski málefnið ekki jafn nálægt þeim.

Andrir (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 17:53

9 identicon

Voru krakkarnir ekki bara að benda á hvað mótmæli trukkabílstjóra eru fáránleg. Ef eitthvað er var jafnvel meira vit í mótmælum krakkanna en bílstjóranna. Afhverju í ósköpunum er orðið svona dýrt í bíó? 

MÓTMÆLUM BENSÍNI! 

Gunnar (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 21:17

10 Smámynd: Haraldur Bjarnason

....sum þeirra voru líka að mótmæla mótmælum....það er ekkert verra en hvað annað

Haraldur Bjarnason, 25.4.2008 kl. 21:22

11 identicon

Málið er bara það að mér sýndist bara miklu auðveldarar að tala við þessa krakka á rólegum nótum heldur en vörubílstjóra síðastliðin miðvikudag. Lögreglan hafði líka reint að tala við vörubílstjóra á rólegu nótunum býsna lengi áður en þeir tóku til aðgerða, ef vörubílstjórar hefðu hlýtt fyrirmælum lögreglu og hagað sér eins og menn þá hefði ekkert af þessu gerst.

Atli (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 10:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband