Öflugir vörubílstjórar

"Nauðsyn brýtur lög," það á svo sannarlega við um öflugar aðgerðir vörubílstjóra til að vekja athygli á háu eldsneytisverði og auknum álögum á atvinnustarfsemi þeirra. Fleiri hópar mættu taka þá til fyrirmyndar núna. Það dugar ekkert að skæla úti í horni eða að senda stjórnmálamönnum bréf. Það þarf eitthvað áþreifanlegt, eitthvað sem vekur verulega athygli. Atburðir sem þessi er vel þekktir erlendis og þar eru menn yfirleitt ekkert að skafa utan af hlutunum við mótmæli. - Frábært framtak hjá ykkur vörubílstjórar, sem eflaust kemur fleirum til góða.
mbl.is Vegi lokað við Rauðavatn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

"Frábært framtak" að nota aðgerðir sem bitna á óskyldum aðilum.   Skárra er það nú.  Nei, þessir menn kunna ekki að skammast sín.

Púkinn, 28.3.2008 kl. 14:00

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hverjir eru óskyldir aðilar í þessu tilfelli, hækkun eldsneytisverðs og annarra gjalda á flutninga bitnar á allri þjóðininni. - Og hana nú nafnlausi skrattakollur !

Haraldur Bjarnason, 28.3.2008 kl. 14:15

3 Smámynd: Þorsteinn Þormóðsson

 Í guðanna bænum hættu þessu væli "Fýlu-púki" og keyptu þér reiðhjól!

Þorsteinn Þormóðsson, 28.3.2008 kl. 14:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband