Ekki undarlegt að óhöpp verði

Mér finnst ekki undarlegt að óhöpp verði í hálku hér á Akureyri. Í nótt snjóaði talsvert og í dag var hitinn rétt undir frostmarki og dálítil snjókoma. Í morgun hefði þurft að renna yfir allar helstu götur og ryðja burt þeim snjó sem kominn var áður en umferð hófst. Í staðinn þjappast snjórinn undan umferðinni og hjólför myndast með tilheyrandi vandræðagangi fyrir ökumenn. Svo rífast menn hér endalaust um hvort salta eigi götur eða sanda. Hvorugt þarf að gera ef ruðningstæki eru sett af stað snemma morguns áður en umferð hefst. 
mbl.is Staurinn lá óvígur eftir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Guðný

Það þurfa ekkert að verða óhöpp. Bara passa sig og vera vel skóaður.

Anna Guðný , 26.2.2008 kl. 19:01

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þá hefur strætóskrattinn verið illa skóaður og ljósastaurinn ekki passað sig nógu vel.

Haraldur Bjarnason, 26.2.2008 kl. 19:46

3 Smámynd: Anna Guðný

Já, gæti passað

Anna Guðný , 26.2.2008 kl. 21:49

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Var að lesa það núna að annar strætó lenti í árekstri á Akureyri í kvöld. Að þessu sinni við fólksbíl á Drottningarbrautinni og tveir fluttir á sjúkrahús - ekki gott mál og umhugsunarefni.

Haraldur Bjarnason, 26.2.2008 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband