Þetta virðist hið besta mál en hvað segir Svandís?

Þetta virðist vera hið best mál til viðbótar við allt metanið sem við getum framleitt. Þessi verksmiðja skapar vinnu og minnkar mengun frá járnblendinu á Grundartanga. Skipin geta komið þangað beint að bryggju til að taka þetta eldsneyti, svo dæmi séu tekin.

Svo eru rafbílarnir auðvitað framtíðin þegar rafgeymarnir verða nógu þróaðir fyrir þá og það má rækta repju hér á landi í meira mæli en gert er í dag. Hún hefur verið ræktuð sem fóður hér með góðum árangri og hægt er að nýta lítið notaðar fiskimjölsverksmiðjur til framleiðslu á eldsneyti úr henni.

Nú er bara spurning hvað Svandís Svavarsdóttir segir. Ekki víst að þetta sé stóriðja að skapi VG.


mbl.is Myndi draga úr útblæstri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband