Nú þarf að bretta upp ermar

Jamm. Ljótt er það. Nú þurfa Gylfi Þórðar og félagar hjá Speli heldur betur að bretta upp ermar og láta verkin tala. Þetta er ekki gott til afspurnar. Ætli þessi samtök hafi skoðað Oddsskarðsgöng eða Strákagöng?
mbl.is Hvalfjarðargöng fá falleinkunn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er alvarlegt mál. Af öllum þeim göngum sem skoðuð voru fengu eingöngu Hvalfjarðargöng falleinkumm. Göngin gegna lykilhlutverki fyrir umferð fólks á vesturland, vestfirði , norðurland og hluta austurlands. Ferðamanna þjónusta er vaxandi grein en mjög viðkvæm grein. Þjónusta og öryggi hér á landi verða að vera sambærileg því sem gerist í öðrum Evrópulöndum. Hér er mikið verk að vinna!

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 11:53

2 identicon

Hrafn, ég ætla að biðja þig um að lesa frétina aðeins betur.

"Samtökin segja að fern göng hafi fengið rauða spjaldið. Hvalfjarðargöngin komi hins vegar verst út af þeim. "

En ég er alveg sammála því að það þarf að bæta öryggið í göngunum.

Andri (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 12:25

3 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Þröng dimm og löng

göngin hjá Speli

Lokuð eyrnagögn

á ráðherra-meli.

Óskar Guðmundsson, 29.7.2010 kl. 14:13

4 Smámynd: Sindri Karl Sigurðsson

Það væri flott að senda þetta lið í Oddsrassinn og athuga hvort það kemst aftur út...!!

Hvalfjörður hvað... Það er hægt að fara hina leiðina ef einhver er hræddur.

Sindri Karl Sigurðsson, 29.7.2010 kl. 20:47

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Satt segirðu Sindri. Hvalfjarðargöngin eru að vísu talsvert lengri en Oddsskarðsgöngin en engu að síður tvíbreið og björt með fjölda öryggismyndavéla, þar er bæði útvarps- og símasamband. Það er engin flóttaleið úr göngum nema um gangamunna, hvort sem þau eru undir fjöll eða sjávarbotn.

Haraldur Bjarnason, 29.7.2010 kl. 22:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband