Erfitt að skilja

Það er erfitt að skilja hvers vegna Sjómannasambandið og Farmanna- og fiskimannasambandið ættu að vera á móti skötuselsfrumvarpinu. Í raun er bara verið að setja í lög heimildir sem sjávarútvegsráðherrar allt frá 2003 hafa nýtt sér til þessa. Þeir hafa árlega bætt við ráðgjöf Hafró um skötusel og allt upp í 800 tonn á ári tvisvar. Þetta ætti að vera sjómönnum til hagsbóta og minnka líkur á að þeir séu neyddir til þátttöku í kvótaleigu eins og því miður er alltof algengt. Það er líka ljóst að Hafró hefur nánast ekkert kannað útbreiðslu skötusels við landið og byggir ráðgjöf sína á afar veikum rökum. Þessum fiski hefur fjölgað ört hér við land vegna breyttra skilyrða í sjónum og það er nokkuð sem Hafró hefur lítið tekið tillit til hingað til.

Getur verið að forsvarsmenn þessara samtaka sjómanna séu undir hælnum á LÍÚ-klíkunni, sem vill sölsa allt til sín og ráða öllu. Það besta fyrir sjómenn væri að ef bætt er við veiðiheimildum í öðrum fisktegundum verði það gert á sama hátt og gert er með skötuselinn.


mbl.is Sjómenn taka þátt í störfum sáttanefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bjarni Kjartansson

 Eg er sammála þér í þessari færslu.  Þessir menn eru greinilega farnir að taka sporið með LÍÚ. Þeir nýta sér það að sjómenn geta ekki sagt sína skoðun á málinu, vegna hræðslu um brottrekstur.  Þeir eiga að skammast sín og segja af sér.

Bjarni Kjartansson, 24.3.2010 kl. 11:16

2 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Sammála.

Jón Halldór Guðmundsson, 24.3.2010 kl. 11:35

3 identicon

ég er ekki viss um að forustumenn sjómannasambandsins hafi samþykki sinna félagsmanna fyrir þessari hótun sinni,allavega veit ég ekki um neinn sjómann sem ekki er til í að borga lægra leiguverð fyrir skötusel heldur en menn eru nú neyddir til að borga. 

arni (IP-tala skráð) 24.3.2010 kl. 13:57

4 Smámynd: Valmundur Valmundsson

Bara ein lítil spurning. Hver á að borga 120 kallinn?

Valmundur Valmundsson, 24.3.2010 kl. 20:46

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Árni það er alveg ljóst að sjómenn hafa tekið þátt í kvótaleigu. Þess vegna eru það hagsmunir sjómanna að kvótaverð lækki en ég átta mig ekki á þessum 120 kalli Valmundur.

Haraldur Bjarnason, 25.3.2010 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband