Skítblankir flugvirkjar

Auðvitað á maður ekki að vera ósáttur við að fólk fari fram á kjarabætur. Þvert á móti ættu allir að fagna því að þær náist fram. Hins vegar finnst manni svolítið skrítið að við þær aðstæður sem eru nú, fjöldaatvinnuleysi og skert kjör alls almennings í landinu, þá skuli fámenn stétt leyfa sér að fella kjarabætur sem samið hefur verið um.

Auðvitað eru flugvirkjarnir skítblankir eins og aðrir landsmenn en er þeim stætt á þessu? Sett hafa verið lög á kjaradeilur hér í landi af minna tilefni en nú og við allt aðrar og betri aðstæður en nú ríkja í þjóðfélaginu.


mbl.is Flugvirkjar felldu samninginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Sigurður Pétursson

Þessi stétt, einsog svo margar aðrar tengdar fluginu, gat ekki fengið launahækkanir þegar að allt var a´blússandi uppleið vegna þess að þá var krónan svo sterk.

Semsagt Flugfélög  sem að voru með stóran hlut tekna í dollurum gátu ekki samið þá.

 Núna ættu þeir að geta fengið launauppbót þar sem að jú krónan er mjög veik og þar að leiðandi margar krónur sem að koma inn fyrir hvern dollar.

Árni Sigurður Pétursson, 1.3.2010 kl. 22:10

2 Smámynd: Kommentarinn

Sammála. Það getur engin ein stétt ætlast til þess að fá stórbætt kjör á meðan hinir sitja eftir með ekkert.

Kommentarinn, 1.3.2010 kl. 22:10

3 Smámynd: Jón Rúnar Ipsen

finnst þessi umræða á villigötum hvaða hugsun er það að reka lálaunastefnu

Jón Rúnar Ipsen, 1.3.2010 kl. 22:15

4 identicon

Það hefur ekki heyrst frá þessari stétt í 10 ár og svo koma þeir nú með kröfur uppá 25% launahækkun sem er auðvitað alveg útúr kortinu í dag !

Og það er ekki eins og þeir hafi verið á hjúkrunarlaunum fyrir.

Guðmundur Árnason (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband