Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Er það ekki 151 metri?

Mér finnst líklegra að það eigi eftir að sprengja 151 metra í Bolungarvíkurgöngum en ekki 151 meter. Í barnaskóla læra flestir að á íslensku er talað um lítra og metra en ekki líter og meter.
mbl.is Búið að grafa yfir 5 km
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef hún er sýkt á að veiða

Ef síldin reynist sýkt er rökrétt að veiða sem mest af henni til að koma í veg fyrir frekara smit. Ef mikil sýkt síld er í afmörkuðum firði hlýtur smithætta að aukast. Sýkta síldin nýtist vel í bræðslu og það eru verðmæti líka. Að veiða hana ekki skapar ekki bara aukna smithættu heldur líka hættu fyrir annað lífríki í Breiðafirði þegar síldin drepst, leggst á botninn og þekur fjörur.
mbl.is Sýni úr síldartorfum á Breiðafirði send til Hafró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kom strax fram

Þetta kom strax fram í textanum sem fylgdi myndinni af grettnum Tryggva Þór í Mogganum um daginn. Þá var sagt að þetta væri árleg inflúensusprauta.  Maður var hins vegar farinn að efast þegar aðrir fjölmiðlar þrástögluðust á svínaflensu í þessu sambandi.
mbl.is Ekki svínaflensu bólusetning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er það sem "kvótaeigendur" vilja

Þetta er einfaldlega bein afleiðing þess að kvóti er ekki aukinn sem full efni eru til. "Kvótaeigendur" vilja ekkert að kvótinn verði aukinn. Þá lækkar verð á leigu- og sölukvóta, veðhæfni útgerðarfyrirtækjanna minnkar og óæskilegir sjómenn komast til veiða. Menn geta svo velt fyrir sér samspili ráðgjafans, sem er Hafró og kvótaeigendafélagsins LÍÚ í þessum efnum. 

Á þetta horfir nú Jón Bjarnason aðgerðarlaus og bjargarlaus eins og reyndar allir sjávarútvegsráðherra síðustu tveggja áratuga og rúmlega það. Valdið er hjá Hafró sem telur sig geta geymt fisk í sjónum og fitað smáfisk sem ekki hefur æti. Þetta hefur verið reynt í 25 ár. Hver er svo árangurinn? Aldrei fleiri skyndilokanir vegna smáfisks en einmitt nú. Hafró lætur ekki svo lítið að kanna hvort smáfiskurinn er ungfiskur eða gamall soltinn fiskur. Eitt símtal frá Fiskistofu dugar "vísindamönnunum." 


mbl.is Verð á leigukvóta í hæstu hæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóg að gera hjá bændum

Það er auðvitað ekki hægt að ætlast til þess að bændur svari einu eða neinu á þessum árstíma. Þeir voru í göngum, eða jafnvel enn í heyskap, þegar þetta barst og síðan tók við sláturtíð. Ríkisrekna apparatið þeirra í Bændahöllinni hefur örugglega nóg annað að gera en að velta sér upp úr einhverjum spurningum á útlensku.
mbl.is Bændasamtökin fóru ekki yfir svörin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkuð mörg hjörl þetta

Mig minnir að EES samningurinn hafi verið 10 þúsund blaðsíður. Sagt var að enginn hefði lesið hann allan nema Hjörleifur Guttormsson, sem þá var á Alþingi. Það sem meira var, menn sögðu að Hjörleifur myndi líka allt sem í honum stóð. - Ætli þeir eigi einhvern Hjölla þarna í Brüssel til að lesa þetta yfir? - Þetta eru nokkuð mörg hjörl en það var mælikvarði á lengd þingræðu í þingtíð Hjörleifs.
mbl.is Svör Íslands afhent í Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er bara að nýta hana

Þá er bara nýta hana í eitthvað sem skapar störf og gjaldeyri. Við höfum nóg af málmbræðslum og ekki gáfulegt að hafa öll eggin í sömu körfunni. Þær gera sitt gagn í dag og skapa bæði gjaldeyri og störf. Á móti kemur að þær eru mengandi og við fullnýtum nánast kolefniskvóta okkar með því sem þegar er komið. Gagnaverin eru á borðinu en svo má athuga fleiri hugmyndir.
mbl.is Mikil jarðvarmaorka er ónýtt á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Braskararnir finna alltaf leiðir

Kvótinn var á sínum tíma tengdur byggðunum. Sveitarstjórnir þurftu að samþykkja flutning kvóta úr sveitarfélögum. Braskararnir fundu auðvelda leið fram hjá því og keyptu ekki bara skip og kvóta heldur fyrirtækin í heilu lagi. Höfðu þau áfram skráð í viðkomandi byggðarlagi og fóru á burt með skip og kvóta. "Guggan verður alltaf gul," sagði Mái þegar hann keypti flaggskip Ísfirðinga. Allir vita framhaldið. Jón Bjarnason nefnir allskonar útgáfur af veiðikerfum. Eftir því sem kerfin verða flóknari því mun meira eftirlit þarf og það kostar mikið.

Það á að auka þorskkvóta strax um 100 þúsund tonn. Stofnarnir þola það vel. Hafró er nú að setja met í skyndilokunum á smáfisk og það fyrir línuveiðum. Það skyldi þó ekki vera að fiskurinn sæki svo mikið á línuna vegna þess að hann vantar æti? Í það minnsta sækjast  sjómenn ekki eftir að veiða smáfiskinn, kvótinn er of verðmætur til þess. Þeir hjá Hafró trúa því enn að hægt sé að geyma fiskinn í sjónum þar til hann stækkar. Þetta hefur verið gert í 25 ár og allir vita árangurinn. Nú vernda þeir líka sýkta síld, væntanlega bíða þeir eftir að henni batni. Auðvitað er skynsamlegast að veiða hana í bræðslu frekar en láta hana drepast engum til gagns.

Frjálst framsal kvóta og veðsetningar hans eru meinið. Meðan stóru útgerðirnar eru með kvótann veðsettan í botn vilja þær ekki aukinn kvóta. Þá lækkar kvótinn í verði og um leið veðhæfni útgerðanna. Hafró spilar svo með enda vilja menn ekki styggja LÍÚ þar á bæ.


mbl.is Kvóti verði tengdur byggðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lánastofnanir taki eitthvað á sig líka

Íslenskar lánastofnanir hafa ásamt tryggingafélögum og olíufélögum aldrei þurft að taka áhættu í rekstri. Réttur skuldara hér á landi hefur aldrei verið neinn. Ekki einu sinni þeirra skuldara sem gerðu ekkert annað en fá lán til að koma þaki yfir sig og sína.

Fjármagnseigendur hafa alltaf allt sitt á þurru með belti og axlabönd, allt vísitölutryggt. Jafnvel þeir sem tóku þátt í keðjubréfum þenslunnar hafa sitt á þurru. Þeir fjármögnuðu sín hlutabréf með því að eitt félag í þeirra eigu lánaði öðru og svo framvegis. Svo fóru þessi félög bara á hausinn því keðjan slitnaði. Eftir sitja sperrtir drengir með allt á þurru.

Það er gott og blessað að nú eigi að auka svigrúm skuldara en er ekki tími til kominn að lánastofnanir taki eitthvað á sig líka?


mbl.is Svigrúm skuldara aukið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Makrílsíld?

Það er gott mál að leitað skuli að síld og ástand hennar kannað en af hverju birtir mbl.is mynd af makríl með þessari frétt?
mbl.is Síldarleit að hefjast hjá Hafró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband