Verður þetta þá loks afgreitt?

Getur þá verið að þetta Icesave mál verði þá loks afgreitt og stjórnmálamenn geti farið að snúa sér að því sem skiptir máli fyrir þjóðfélagið; endurreisn bankakerfis og atvinnulífs. Ekki veitir af til að afla gjaldeyris til greiðslu skulda óreiðumannanna. Það dugar ekkert að strögla endalaust um þetta sama mál. Lengra verður ekki komist í því og ef við ætlum að vera með í samfélagi þjóða og geta flutt út okkar framleiðsluvörur verðum við að kyngja þessum Icesave samningi, hversu vel eða illa okkur líkar við það. Við eigum einfaldlega ekki annarra kosta völ.


mbl.is Icesave afgreitt út úr nefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórbergur Torfason

Að sjálfsögðu eigum við annarra kosta völ Halli. Við getum bara fryst málið og snúið okkur að öðru þarfara, til dæmis að kalla heim ESB sendlana og setja þá í einhverja ærlega vinnu t.d. að skreyta jólatré.

Þórbergur Torfason, 17.11.2009 kl. 01:20

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Beggi eru ekki allir ESB sendlarnir hérna heima? Hins vegar er spurning hvort ekki er hægt að skreyta bara eitthvað af öllu þessu stjórnarandstöðuliði eins og jólatré. Hvað er til dæmis grænna en framsóknarmaður með glimmer og kúlur? Bjarni Ben myndi líka taka sig vel út sem blágrenitré á Austurvelli.

Haraldur Bjarnason, 17.11.2009 kl. 09:22

3 identicon

Segðu, og ef þú bætir rauðskalla og gömlu gránu á tréð þá verða fyrst jól. og endurreysnin getur þá hafist. Án Iceslave.

Óskar (IP-tala skráð) 17.11.2009 kl. 11:01

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Þetta getur orðið myndarlegur og fjölbreyttur jólatrjáaskógur Óskar. Jafnvel með Icesave merkið á toppnum.

Haraldur Bjarnason, 17.11.2009 kl. 11:54

5 Smámynd: Þórbergur Torfason

Já viljiði nota englahárið hennar Jóhönnu sem skraut á jólatré. Það gæti verið vel til fundið. Er eitthvað nothæft á Steingrími sem skraut nema hann gæti kannske sungið "göngum við í kringum" með tilbrigðum við Icesave.

Þórbergur Torfason, 17.11.2009 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband