Þjóðminjasafnið táknrænn fundarstaður

Mjög táknrænt að fundur þessa fólks skuli hafa verið haldinn í Þjóminjasafninu. Þarna er hópur fólks sem vill halda í gömul gildi. Hópurinn vill ekki samningaviðræður um aðild að ESB og um leið að þjóðin fái ekki að vita hvað er í boði þar og fái því ekki að greiða atkvæði um aðild.
mbl.is Ásmundur Einar nýr formaður Heimssýnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Ég veit ekki betur en að margar af helztu gersemum þjóðarinnar séu geymdar á Þjóðminjasafninu? :)

En að öllu gamni slepptu þá er þegar vitað í langflestum tilfellum hvað innganga í Evrópusambandið hefði í för með sér eins og t.d. Olli Rehn, ráðherra sambandsins í stækkunarmálum, hefur bent á. En það þarf að kynna sér málið og því nenna ekki allir.

Hjörtur J. Guðmundsson, 15.11.2009 kl. 19:51

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Einmitt. Þetta fólk er gersemar líka sem þarf að varðveita eins og hverja aðra safngripi Hjörtur. Auðvitað þarf að kynna sér málið vel og síðan á þjóðin að kjósa um  þetta. Það á ekki að taka ákvörðun núna, hvorki af eða á.

Haraldur Bjarnason, 15.11.2009 kl. 20:17

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Þetta Evrópusambandsbrölt er eins og að borga fyrir kynningarfund um mál sem þú veist þegar nóg um til þess að taka afstöðu til. Með öðrum orðum hrein og klár peningasóun.

Hjörtur J. Guðmundsson, 15.11.2009 kl. 20:57

4 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Mátti ekki bara loka og henda lyklinum.. við getum horft inn um gluggana.

Jón Ingi Cæsarsson, 15.11.2009 kl. 21:13

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hjörtur við vitum að vísu um allt sem tilheyrir evrópska efnahagssvæðinu og við höfum skrifað upp á. Svo viljum við vita eitthvað um sjávarútvegsmálin og landbúnaðarmálin til dæmis. Þegar búið er að ræða þetta og skoða kemur að þjóðinni að velja. En að sitja á Þjóðminjasafninu með einhver gömul gildi og vilja ekki tala við umheiminn um hvað er í boði og hvað ekki er auðvitað hrein afturhaldssemi og íhaldsmennska. - Nei Jón Ingi það á frekar að geyma þessa muni í glerbúri þar eins og hina fornmunina.

Haraldur Bjarnason, 15.11.2009 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband