Hvert á að forða slysinu?

"Vilja forða slysi" er fyrirsögn þessara fréttar. Hvert á að forða slysinu? Eitthvað annað væntanlega? Það er hægt að forðast slys en að taka slys og fara með það eitthvað annað, gengur tæplega upp. Fyrir utan að innihald þessarar fréttar er með það mörgum óskiljanlegum orðum fyrir allan almenning að fáir skilja. Það getur vel verið að einhverjir pappírspésar skilji þetta.
mbl.is Vilja forða slysi við lagasetningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Halli, þetta eru ljótu ambögurnar.  Enda hvernig á annað að vera þegar endurskoðendur útrásartímabilsins ætla að hafa vit fyrir stjórnmálamönnum?

Nei það verður engum slysum forðað, enda hver ætti að vilja taka við því?  Það eina sem við getur gert er að taka til fótanna og forða okkur til annarra landa eins og þúsundir íslendinga er að gera um þessar mundir.  Eða þá að steinhætta öllu sem getur talist launavinna, fá okkur veiðistöng og setja niður kartöflur, svo ekki sé talað um hænsn.  Annars verðum við fyrir stórslysi.

Magnús Sigurðsson, 28.6.2009 kl. 10:12

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Já Maggi. Eg er búinn að fá mér veiðistöng og setja niður kartöflur, gulrætur, radísur og kál. Kryddið er svo hér á pallinum. Vildi gjarnan fá mér hænsn aftur eins ég var með fyrir austan en hef ekki lóð fyrir þær. Svo það verður að bíða betri tíma. En að forða slysi er ótrúlega útbreidd málvilla og slæmt þegar svona ambögur rata óáreittar í fjölmiðla.

Haraldur Bjarnason, 28.6.2009 kl. 12:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband