Gott hjá Gutta

Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt stjórnarflokkana fyrir að setja mál á dagskrá Alþingis sem ekki séu brýn. Þetta 60 ára afmæli Natóinngöngu er greinilega mikilvægt að mati Sjálfstæðismanna eða eins og kemur fram í fréttinni:  "Bætti Þorgerður Katrín því við að ef skýrslan hefði verið rædd í dag hefði einnig mátt ræða hvílíkt gæfuspor það hefði verið fyrir 60 árum að ganga í það friðarbandalag sem hún sagði að NATO væri."

Ég er ekkert hissa á að Guðbjartur Hannesson, forseti alþingis, hafi ekki vitað af þessu afmæli. Hann hefur um nóg annað að hugsa en einhver skotglöð hernaðarbandalög, sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins kallar friðarbandalag.


mbl.is Vissi ekki af 60 ára afmæli NATO inngöngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þeir eru alltaf sjálfum sér líkir Sjálfstæðismennirnir.

Jakob Falur Kristinsson, 30.3.2009 kl. 16:24

2 Smámynd: Guðrún Vala Elísdóttir

Alveg 100% sammála þér!

Guðrún Vala Elísdóttir, 30.3.2009 kl. 16:44

3 Smámynd: Lafðin

Það er nú svo að þessi skýrsla verður, lögum samkvæmt, að koma til umræðu í þinginu og því er einkennilegt að hún er ekki einu sinni komin til fjárlaganefndar, þar sem hún þó verður að byrja áður en hún kemur inn í þingið.  Ekki er langt eftir af þinginu og þær eru fleiri skýrslurnar sem þarf að ræða (aftur, lögum samkvæmt) í þinginu fyrir þinglok .... hvenær á að gera það ?

Lafðin, 30.3.2009 kl. 17:18

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jú Árný Hulda (Lafðin) það má vel vera rétt að ræða þurfi þessa skýrslu en það eru nógir dagar til þess. Hún er ekkert forgangsmál. Mér sýnist hins vegar á fréttinni að skýrslan hafi ekki verið aðalmálið hjá Þorgerði Katrínu heldur hafi hún viljað nota tækifærið til að mæra stríðsbandalagið NATO, sem hún að vísu kallar friðarbandalag, hvernig sem hún fær það nú út.

Haraldur Bjarnason, 30.3.2009 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband