Athafnamaður?

Smá spurning. - Hver er athafnamaður? Er það verkamaðurinn sem vinnur vinnuna sína, bóndinn, sjómaðurinn eða er það bísnessmaðurinn sem græðir á kostnað annarra?


mbl.is Jón Gerald kynnir Smart Kaup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Í dag er þetta skammaryrði.

Víðir Benediktsson, 12.3.2009 kl. 23:50

2 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég var einu sinni athafnamaður. Vann 12 - 14 klukkutíma á dag á togurum, netabátum, síld, loðnu, handfæraveiðum. Kansku voru það fleyri klukkutímarnir.

Það er að vera athafnamaður. Að vinna. Nú vinn ég ekki neitt og er þar af leiðandi ekki athafnamaður.

Bara einu sinnu verið á sjó þar sem skipstjórinn hafði aldrei unnið á dekki. Það var á Garðari gamla frá Patreksfirði. Jón kafteinn gerði ekkert nema opna gliggann í brúnni og öskra til að spyrja hvort við værum kellingingar.

Sem betur fer kom háseti sem fékk leið á honum eftir öll öskrinn og fór upp í brú og steinrotaði hann. Hann var víst rekinn fyrir þetta enn ekki kærður.

Öskrinn hættu alla vega. Mundi bara eftir þessu þegar ég sá Víðir þarna. Jón Gerald er sá sem kom Baugsmálinu af stað og kærði með því sjálfan sig.

Hann á allan heiður fyrir það. Allir vilja vinnu enn er það skammaryrði að stofna fyrirtæki? Undarlegt af þér að tala svona Víðir, eins vitur maður og þú ert.

Það eru allir athafnamenn sem vinna. Hvaða vinnu sem er. Ég er atvinnulaus og þar af leiðandi aumingi líklegast. Eða eitthvað enn verra.

Meiri mórallinn sem er í gangi á þessu Íslandi. Menn eiga eftir að sjá hvaða mann Jón Gerald hefur að geyma þó honum hafi orðið einhver fótaskortur í lífinnu.

Óska honum alls hins besta með nýja fyrirtækið sitt sem mun lækka matarverð og skaffa fjölda manns vinnu.

Óskar Arnórsson, 13.3.2009 kl. 00:15

3 identicon

Ég hef tekið eftir því að í blöðum og tímaritum eru ómenntaðir ríkir einstaklingar kallaðir athafnamenn.

Óli (IP-tala skráð) 13.3.2009 kl. 01:33

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Var bara að velta fyrir mér hvað þarf til að kallast athafnamaður. Alveg óháð öllum Jónum.

Haraldur Bjarnason, 13.3.2009 kl. 09:12

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það er tæpast skammaryrði...hvað sem líður öllum Jónum..;)

Óskar Arnórsson, 13.3.2009 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband