Inn með þá strax

Fyrst þetta er ljóst og mogginn hefur komist yfir svona upplýsingar er þá ekki ástæða til að krefjast gæsluvarðhalds yfir þessu mönnum strax? Það er alltaf gert þegar grunur er um alvarleg afbrot og til að koma í veg fyrir að sönnunargögn tapist. Þessir menn eru búnir að setja heila þjóð á hausinn. Inn með þá strax!
mbl.is Lánuðu sjálfum sér milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Þessir glæpamenn verða aldrei handteknir, settir í gæsluvarðhald né frelsi þeirra heft á nokkurn hátt. Þvert á móti, það verður beitt alls konar bjánalegum töfum og málþófi til að þeir fái sem lengstan tíma til að afmá sönnunargögn og að lokum verður allt fyrnt þegar loksins fyrir sýndarmennsku á að fara að taka á þeim. Og sonur Kauphallarstjórans verður loginn út úr sínu glæpamáli með einhverjum ráðum. Á Íslandi gildir réttarfarið eingöngu fyrir smákrimma og fyllibyttur, ekki auðmannahyskið og pólitíkusa.

corvus corax, 6.3.2009 kl. 20:26

2 identicon

Færum fórnir!!!!!!!(Lag: Upp undir Eiríksjökli.) 

 Úr þeim skal ekkert særa,

engu til baka ná.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en skjóta þá.

Óstöðugan mun æra,

allt því ei fáum sjá.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en hengja þá.

Þá alls ekki ætt´að kæra

né inni þá loka má.

 Auðmönnum fórn skal færa

frekar en hýða þá.

Af sögu má sannleik læra.

Ei sökudólg finna má.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en strýkja þá.

Þá ályktun ei tel bæra,

að auðgist á fingri, tá.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en skera þá.

Þá menn töldu alla æra

sem ekki þá vildi dá.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en ræna þá.

Mannleysur sumir mæra,

manndóm þar ríkan sjá.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en hausa þá.

Snilling er nauðsyn næra.

Nauðþurft oss skerum hjá.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en svelta þá.

Sig stórmenni skulu stæra,

stafkarl í drukkna blá.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en kæfa þá.

Þeim gæfusól skíni skæra

skrölti þeir enn á stjá.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en brenna þá.

Hugsun þá höfum tæra,

að hæla þeim, elska, dá.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en níða þá.

Svefns ekki söknum væra,

svartara má það sjá.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en pynta þá.

Sá svanni hver sýnist gæra

er sofa ei vill þeim hjá.

Auðmönnum fórn skal færa

frekar en gelda þá.

Í okkur má alltaf hræra,

ýta oss til og frá,

en auðmönnum fórn skal færa

frekar en trufla þá.

sveinn (IP-tala skráð) 6.3.2009 kl. 22:15

3 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Á Íslandi eiga þessir menn lagalegan rétt og gleymum ekki að þeir hafa ekki enn verið dæmdir sekir enda málið á frumstigi.

Hilmar Gunnlaugsson, 6.3.2009 kl. 22:23

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

 ROTFLInn með þá strax, sá var góður. 





Magnús Sigurðsson, 6.3.2009 kl. 22:53

5 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Auðvitað eiga allir lagalegan rétt Hilmar en þeir sem liggja undir grun eru settir í gæsluvarðhald svo lengi sem þurfa þykir. Já Maggi inn með þá strax og það er ekki hlægilegt í augum þeirra sem settir eru inn fyrir minni sakir.

Haraldur Bjarnason, 7.3.2009 kl. 00:23

6 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Gæsluvarðhald er einkum notað hér á landi ef um ofbeldisglæpi er að ræða.

Hilmar Gunnlaugsson, 7.3.2009 kl. 00:48

7 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ef það er ekki ofbeldi að setja heila þjóð á hausinn Hilmar. Hvað er þá ofbeldi?

Haraldur Bjarnason, 7.3.2009 kl. 01:10

8 Smámynd:

Ég er sammála því Haraldur að það þarf að tryggja að þessir menn komist ekki til að afmá sönnunargögn.

, 7.3.2009 kl. 09:34

9 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

sammála....eins og oftast

Hólmdís Hjartardóttir, 7.3.2009 kl. 12:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband