Hægir á vexti atvinnuleysi?

Hverslags fyrirsögn er þetta? Hægir á vexti atvinnuleysis? - RUGL - Hefði ekki verið betra að segja: "Atvinna eykst"?


mbl.is Hægir á vexti atvinnuleysis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlédís

Hví að orða á einfaldan hátt, sé hægt að flækja? Fréttin verður matarmeiri svona  

Hlédís, 27.2.2009 kl. 18:43

2 identicon

Ertu ekki að djóka? hvernig í ósköpunum færð þú það út að ef það hægist á atvinnuleysi þá sé atvinna að aukast?eins gott að þú ert ekki hagfræðingur :-)

Einar (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 19:02

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

...ekki eins mikil tregða á atvinnuleysinu...

Óskar Þorkelsson, 27.2.2009 kl. 19:55

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Einar, þetta er hagfræðimál. Á ekkert skylt við íslensku.

Haraldur Bjarnason, 27.2.2009 kl. 20:17

5 Smámynd: Hlédís

Einar! Auðvitað er rétt að setningin þýðir ekki að atvinna hafi aukist - samt er hún órökrétt. Segir þú að "hægi á aukningu rigningar" er dregur úr regni?

Hlédís, 27.2.2009 kl. 20:19

6 Smámynd: Jóhannes Snævar Haraldsson

Ég verð nú að taka undir með Einari. Eruði ekki að djóka?

Þessi fyrirsögn lýsir nákvæmlega því sem verið er að tala um og er ein af þeim fáu sem eru hár réttar í fjölmiðlum. Þetta er einfaldlega ákveðið svæði á línuriti sem getur átt við nánast hvað sem er.

Ef úrkoma er að aukast yfir lengri tíma, þá getur dregið úr aukningu hennar á ákveðnum punkti/stað og þetta er bara hárrétt íslenska.

Jóhannes Snævar Haraldsson, 27.2.2009 kl. 20:33

7 identicon

Ef við erum á 100 km/klst hraða og hægi á mér, er fjarlægð mín frá upphafspunkti ekki enn að aukast?

Atvinnuleysi er enn að aukast þó það hægi á vexti þess.

Gunnar Geir (IP-tala skráð) 27.2.2009 kl. 20:37

8 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Hverjir tala íslensku hérna? Skil ekki allt.

Haraldur Bjarnason, 27.2.2009 kl. 22:13

9 Smámynd: Hlédís

Viðurkenni rök ykkar, Jóhannes og Geir! Það er sjálfsagt erfitt að orða lipurlega hvernig ferli hægir á sér.

Hlédís, 27.2.2009 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband