Óttast uppljóstranir Davíðs

Er ekki bara málið það að Höskuldur og flokkseigendurnir í Framsóknarflokknum óttast uppljóstranir Davíðs verði hann látinn hætta? Það er það sama og Sjálfstæðismennirnir óttast, enda vita allir að Davíð er hefnigjarn og langrækinn. Hann veit margt um sukk Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks síðustu tvo áratugi og lætur það án efa fara út verði hann látinn víkja.
mbl.is Skynsamlegt að bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það er annaðhvort hræðsla eða hórdómur sem er að hrjá framsókn núna...annaðhvort veit Davíð eitthvað eða það er búið að lofa Famsókn einum bankastjórastól ef þeim tekst að stöðva þetta....ég get lofað því að ef þetta verðu ekki afgreitt í vikunni verða nýjir eldar kveiktir og það verður ekki tekið á NEINUM með einhverjum silkihönskum, lögreglan ætti að fara undirbúa sig undir meiriháttar átök!! 

Atvinnumaður (IP-tala skráð) 23.2.2009 kl. 15:14

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Ég held að þetta sé málið

Finnur Bárðarson, 23.2.2009 kl. 15:22

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Frumvarpið er hrákasmíð og til þess fallið að auka völd forsætisráðherra. Þeir sem leggja fram frumvarpið hafa talað um alræði framkvæmdavaldsins. Þessi ríkisstjórn er samansafn af pólitískum vitleysingum.

Vanhæf ríkisstjórn!!

Gunnar Th. Gunnarsson, 23.2.2009 kl. 15:38

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Ekki nóg með það Gunnar því pólitískir vitleysingar finnast mun víðar, jafnvel á Reyðarfirði, en toppurinn er þó í Seðlabankanum.

Haraldur Bjarnason, 23.2.2009 kl. 15:49

5 Smámynd: Sævar Einarsson

Haraldur Bjarnason fær 10 stig af 10 fyrir þetta skot !

Sævar Einarsson, 23.2.2009 kl. 19:07

6 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

þetta er örugglega nákvæmlega svona..

Hólmdís Hjartardóttir, 23.2.2009 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband