Af hverju að fórna löggunni fyrir þetta lið?

Eru þetta ekki fulltrúar hernaðarbandalags sem eru inn á hótelinu við Suðurlandsbrautina? Maður hélt nú að svoleiðis lið væri fullfært um að verja sig sjálft fyrir nokkrum Íslendingum með potta og sleifar. Hvað erum við að fórna íslenskum lögreglumönnum í þetta og allra síst verðmætu gasi? Þetta eru fulltrúar hernaðarbandalags sem hefur farið um allan heim með látum, Írak, Afganistan og bara að nefna það. Svo er að koma ríkisstjórn núna sem hlýtur að geta tekið undir slagorðin: "Ísland úr Nató - Herinn burt."  - Spörum lögguna til að verja alvörufólk. Þessir eiga að geta séð um sig sjálfir eða verið heima hjá sér ella.
mbl.is Lögregla beitti piparúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eggert J. Eiríksson

Þetta eru pappírspésarnir, og kannski inn á milli einhverjir löngu hættir herþjónustu en sama niðurstaða, pappírspésar.

kv EJE

Eggert J. Eiríksson, 28.1.2009 kl. 20:35

2 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Ég er hætt að skilja "lögreglu" minnar þjóðar!

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 28.1.2009 kl. 20:59

3 Smámynd: Ellert Júlíusson

Það á að sjálfsögðu að gefa lögreglunni langþráð frí og leyfa uppvöðsluseggjunum aðeins að leika sér við stóru Natokallana.

Finnst það nú jaðra við hræsni að þetta lið komi hingað í boði Íslendinga. Ættum að bjóða þeim upp á súra hrútspunga og súrt slátur, á öðru höfum við ekki efni...þökk sé að hluta þeim!

Ellert Júlíusson, 28.1.2009 kl. 21:04

4 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Solla hafði manndóm í sér til að afþakka heimsókn Ísraelsmannsins um daginn. Nær hefði verið að afþakka komu þessa liðs líka frekar en að bjóða þeim að éta. Ellert. Hrútspungar og súrt slátur eru allt of góður matur handa þessu hyski. Verst að ekki er farið af veiða hvalinn það hefði mátt gefa hyskinu afskurð af langreyði. Anna það er verið að siga lögreglunni í ótrúlegustu hluti á meðan lögregluembættum víða um land er gert að spara svo mikið að ekki er til peningur fyrir bensíni á löggubílana. Eggert. Auðvitað eru þetta pappírspésar en það eru einmitt þeir sem etja ungdómi þjóða sinna í opinn dauðann í blóðugum bardögum. Við höfum ekkert að gera með þetta hyski hingað og alls ekki að leggja í kostnað við að verja það.

Haraldur Bjarnason, 28.1.2009 kl. 22:58

5 Smámynd:

Sammála þér Haraldur!

, 28.1.2009 kl. 23:10

6 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Góð athugasemd Haraldur

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 28.1.2009 kl. 23:18

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

gódur punktur

María Guðmundsdóttir, 29.1.2009 kl. 07:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband