Slíta á öll tengsl

Sollu er ekki alls varnað í þessum málum. Nú á bara að láta kné fylgja kviði og slíta á öll tengsl við Ísraelsmenn þar til þeir hætta þessum morðum á Gaza. Hamas samtökin eru að vísu engin englasamtök en það réttlætir á engan hátt stórárásir Ísraelsmanna, sem í skjóli Bandaríkjamanna, ráða yfir stærstu og mannskæðustu stríðstólum heims. Nú síðast forsfórsprengjur sem strádrepa og brenna fólk. Þá er ekki spurt um hverjir verða fyrir.


mbl.is Heimsókn Ísraela til Íslands afþökkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Ólafsson

Til hvers að slíta á tengsl við ísrael ?

þeir eru einu sem þora að rasskella þessa skæruliða sem fela sig innan um börn og saklaust fólk og skjóta þaðan.

og auðvita verða einhverjar fórnir af þess völdum

Guðjón Ólafsson, 16.1.2009 kl. 18:24

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Æi, Guðjón, hvernig hugsarðu? - Er eitthvað til sem réttlætir fjöldamorð? - Það er nú öllu meira en rassskelning að strádrepa almenning. - Hvaða fórnir ertu að tala um?

Haraldur Bjarnason, 16.1.2009 kl. 18:28

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ef þeir geta ekki tekið nokkra glæpamenn fasta án þess að strádrepa saklaust eru þeir orðnir verri en glæpamennirnir.  Þetta er kallað heigulsháttur.

Víðir Benediktsson, 16.1.2009 kl. 19:09

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Það vill oft gleymast að Hamas unnu lýðræðislegar kosningar í Palestínu, en Ísrael viðkennir ekki Hamas og Hamas ekki Ísrael.  Bandaríkin og önnur vestræn lýðræðisríki viðurkenna ekki heldur Hamas.  Birtingarmynd lýðræðisins er oft furðulega hræsnisfull.

Hamas er margt fleira en hryðjuverkasamtök, þau sjá um skóla, sjúkrahús og margar stofnanir samfélagsins.  Þess vegna telja Ísraelsmenn sig vera í rétti með að láta sprengjum rigna hvar sem er á Gaza jafn vel á UN. 

Hvorki utanríkisráðherra né ríkistjórn Íslands mun hafa kjark til að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael.  Þeirra afstaða mun meira birtast sem lýðskrum innanlands.

Magnús Sigurðsson, 16.1.2009 kl. 21:56

5 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Bara frábært hjá utanríkisráðherra!

Jón Halldór Guðmundsson, 17.1.2009 kl. 15:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband