Þar fer góður drengur fyrir lítið

Get ekki annað sagt en þar fer góður drengur fyrir lítið. Framsókn verður ekki við bjargað eftir klúður síðustu áratuga. Sama hversu góðir drengir keppast þar um völd.
mbl.is Sigmundur Davíð býður sig fram til formanns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Mér lýst sérlega vel á Sigmund Davíð.  Flottur strákur.

Hólmdís Hjartardóttir, 30.12.2008 kl. 21:18

2 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Kannski er hann kraftaverkakarl.....það dugar ekkert minna

Sigrún Jónsdóttir, 30.12.2008 kl. 21:26

3 identicon

Sæll.

Mér líst vel a Sigmund. Virkar rjóður í kinnum með hraustlegt og gott útlit.

Allit vita að Malt er gott.

Hver sá er getur talið mér trú um að þeir muni stokka upp Framsóknarflokkinn þeim mun ég trúa ef þeir sannfæra mig.

Ég mun sannarlega ekki kjósa þá er lærðu af flokkræðispólitík,sama í hvaða flokki þeir eru.

En meðan ég veit ekki betur þá er Sigmund sá frambærilegasti er hefur boðið sig fram fyrir framsókn...........þar sem ég hef ekki gert það ennþá.....

Kveðja Rúnar Hart.

Kristinn Rúnar Hartmannsson (IP-tala skráð) 30.12.2008 kl. 21:40

4 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Kannski á Sigmundur eftir að snúa við blaðinu hjá Framsókn? Way To Go 





Magnús Sigurðsson, 30.12.2008 kl. 21:41

5 Smámynd: Jakobína Ingunn Ólafsdóttir

Já það væri gott að sjá hann annars staðar.

Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 30.12.2008 kl. 21:59

6 Smámynd: Steingrímur Helgason

Amlóðar verða að róa skútunni þegar allt annað er fyrir borð...

Steingrímur Helgason, 30.12.2008 kl. 22:12

7 Smámynd: Geir Hólmarsson

Sigmundur Davíð er líkast til bestur í því sem hann hefur verið að gera, sem þjóðfélagsrýnir í spjallþáttum.  Svo er hann örugglega dúndur skipulagsfræðingur.  Hann hefur hins vegar ekki komið nálægt flokknum en hvers vegna býður hann sig fram?  Ég veit að hann er sendur inn af Halldórsklíkunni vegna þess að Páll Magnússon hefur ekki fylgi á landsvísu.  Önnur skýring er ekki trúverðug.  Halldórsklíkan hefur mikla hagsmuni að verja.

Geir Hólmarsson, 30.12.2008 kl. 23:04

8 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Er hann ekki sonur Sigmundar Gunnlaugssonar, sem var með fyrirtækið Kögun?

Jón Halldór Guðmundsson, 31.12.2008 kl. 01:25

9 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Sonur Gunnlaugs Sigmundssonar fyrrv. alþingismanns Framsóknarflokksins.

Haraldur Bjarnason, 31.12.2008 kl. 05:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband