Hámark við milljón og afnema lúxus

Einhvern veginn hef ég trú á að þessar tölur, sem nefndar eru í fréttinni, segi ákaflega lítið um laun þingmanna og ráðherra. Þarna fyrir utan eru svo laun fyrir nefndastörf og allskonar hlunnindi. Hins vegar mættu laun ríkisbankastjóra og ýmissa annarra toppa innan ríkisins lækka niður í það sama og þingfararkaupið er. Er ekki bara einfalt, í þessu ástandi sem nú er, að setja hámarkið hjá ríkinu við milljón á mánuði og afnema hlunnindi eins og frjáls afnot af lúxusbílum.
mbl.is Laun ráðamanna lækkuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Enn og aftur sammála þér Halli

Hólmdís Hjartardóttir, 27.12.2008 kl. 13:29

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Nú og ef laun ráðherra og þingmanna yrðu árangurstengd, en við nánari athugun sé ég að það væri ekki hægt því þá yrðu þeir alveg launalausir.

Jóhann Elíasson, 27.12.2008 kl. 13:37

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Jóhann það hef ég oft sagt það á að árangurstengja launin þeirra.....það myndi spara mikið!

Hólmdís Hjartardóttir, 27.12.2008 kl. 13:44

4 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þetta er alveg rétt hjá þér Hólmdís það skiptir ekki máli hvort þeir eru eða ekki, skiptir engu þótt þau fari í fýlu vegna launaleysis og láti sig bara hverfa, farið hefur fé betra.

Jóhann Elíasson, 27.12.2008 kl. 13:56

5 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ef hugmynd Hólmdísar yrði að veruleika þyrftum við ekki að borga þessu fólki laun yfirleitt. Aldrei hef ég skilið þetta hlunnindakjaftæði með bíla og þess háttar. Ef þetta fólk hefur sannarlega ekki efni á að koma sér í vinnuna á eigin vegum má skoða alvarlega ölmusustrætókort handa þeim.

Víðir Benediktsson, 27.12.2008 kl. 14:44

6 Smámynd: Sigurbrandur Jakobsson

Sagði ekki Guðrún Helgadóttir, tengdamóðir Bjarna Ármannssonar að laun þingmanna væru of lá, vegna þess að hún hafði ekki efni á að kaupa kjól!!!!

Sigurbrandur Jakobsson, 27.12.2008 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband