Skattaskjól stendur ekki lengur undir nafni

Þá er nú fokið í flest skjól þegar "Skattaskjól," stendur ekki lengur undir nafni. Íbúar í Hvalfjarðarsveit hafa, allt frá því Járnblendiverksmiðjan var stofnsett á Grundartanga fyrir 30 árum, notið mikilla tekna frá stóriðjunni þar. Þegar þéttbýlið á Hagamel myndaðist rétt ofan Grundartanga á sýnum tíma var það gjarnan kallað "Skattaskjól." Nú er öldin önnur og þetta fámenna sveitarfélag þarf á öllu sínu að halda. Kannski vilja íbúar þar sameinast nágrönnum sínum á Akranesi núna, sem hafa veitt þeim ýmsa þjónustu í gegnum tíðina og verið í samstarfi á mörgum sviðum.
mbl.is Ekki lengur „skattaparadís"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Finnbogason

Sæll Halli

Hér notar þú orðið VEITT en ég myndi frekar nota orðið SELT þar sem sveitarfélögin sem nú mynda Hvalfjarðarsveit og Hvalfjarðarsveit hafa keypt þessa þjónustu að því er ég best veit. En sveitarstjórnarmálinn á Skaganum eru nú einhvernvegin þannig að það er enginn æsingur hér í Hvalfjarðarsveit að renna inní þau.

Sævar Finnbogason, 30.11.2008 kl. 01:46

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Jú rétt Sævar og segi líka að þau hafi verið í samstarfi, eins og t.d. um slökkvlið, byggðasafni, dvalarheimilið höfða og fleira. Fyrir þetta greiða þau í hlutfalli við íbúafjölda. Svo er margt annað sem þau njóta góðs af í þjónustu. Ég vil hinsvegar sjá eitt sveitarfélag sunnan Skarðsheiðar og jafnvel lengra norður eftir. Þar gæti Borgrbyggð hæglega verið með.

Haraldur Bjarnason, 30.11.2008 kl. 08:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband