Hvers vegna?

Hvers vegna að gefast upp fyrir Brown og Darling? Þeir Jarpur og Elska voru bara að ná sér niður á Íslendingum til að hala inn atkvæði hjá Bretum. Geir sagðist aldrei ætla að láta kúga sig en nú hefur það gerst. Auðvitað átti að láta reyna á þetta mál fyrir dómstólum.
mbl.is Icesave-deilan leyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við höfum ekki efni á því og höfum ekki tíma. Verðum að átta okkur á því að við erum í augum allra bara aumingjar og þorparar fyrir að standa ekki við þessar lágmarksupphæðir og getum því ekki reiknað með hjálp því ekki hjálpum við aumingum og þorpurum heldur.

Sigurður J Guðmundsson (IP-tala skráð) 16.11.2008 kl. 19:11

2 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Nei, ég er algjörlega ósammála síðasta ofanrituðum ræðumanni. Við eigum ekki að láta kúga okkur, lögin eru okkar megin í þessu máli, en spurning hvern við hefðum fengið sem dómara ef á hefði reynt? Kannski einhvern hlutdrægan?

Samt sem áður finnst mér, að við hefðum bara átt að segja "fuck you" við IMF, ef þetta eru skilyrðin þá viljum við ekki ganga að þeim. Þið getið átt ykkur Norðurlandaþjóðir og vestur-Evrópuþjóðir. Við erum Íslendingar og ef þið viljið ekki hjálpa okkur, þá hjálpum við okkur sjálf. Við hefðum átt að samþykkja lán frá Rússum, Pólverjum og Kínverjum og vita til hverju Vesturlandaþjóðirnar hefðu svarað þá. Við ráðum yfir mjög svo dýrmætu loftvarnarsvæði og eyjan okkViðar liggur mitt á milli austurs og vesturs. Hver hefði skitið í buxurnar ef við hefðum ákveðið að reiða okkur á austur í stað vesturs? Hverjir hefðu verið fljótir til að kaupa okkur út úr þannig deal??

Við erum alveg í áhrifa og valdastöðu, við þurfum bara að kunna að notfæra okkur hana.

Lilja G. Bolladóttir, 16.11.2008 kl. 20:02

3 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Okey, þið sjáið að þarna hafa farið einhverjir stafir inn í miðja setningu, bara lesið með annað augað lokað.....

Lilja G. Bolladóttir, 16.11.2008 kl. 20:03

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Það hefði verið best að reyna á þetta fyrir dómstólum

Hólmdís Hjartardóttir, 16.11.2008 kl. 20:52

5 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

En ég spyr þarf ekki að bera þetta undir Alþingi eða þjóðina?

Hólmdís Hjartardóttir, 16.11.2008 kl. 21:38

6 Smámynd: Víðir Benediktsson

Alþingi eða þjóðina?? Hólmdís, láttu þig dreyma. Þú talar eins og þú búir í vestrænu réttar og lýðræðisríki.

Víðir Benediktsson, 16.11.2008 kl. 22:02

7 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Víðir......ég veit að þetta eru draumórar.

Hólmdís Hjartardóttir, 16.11.2008 kl. 22:21

8 Smámynd: Steingrímur Helgason

Þetta eru aznar, Guðjón ...

Steingrímur Helgason, 16.11.2008 kl. 23:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband