Þetta er það sem þurfti

Nákvæmlega það sem allir þurftu núna, eða hitt þó heldur, vaxtahækkun ofan á lánskjaravísitöluna í bullandi verðbólgu. Er það ekki löngu ljóst að þessir háu stýrivextir hafa ekkert verið að virka hér á landi? Löngu kominn tími til að hreinsa til í yfirstjórn Seðlabankans. 
mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 6 prósentur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Johnny Bravo

Hvað veistu um stýrivexti?

Það þarf bara að byrja þarna, til að ná niður verðbólgunni til að við með verðtryggðlán förum ekki öll á hausinn.

Svo er það spurning um að finna lánsfé eins og staðan er í dag ef maður fær ekki hærri vexti en verðbólgan er þá vill maður ekki spara.

Þegar fé fer að koma hingað inn eftir þessum vöxtum þá fer krónan að styrkjast og þá lækka vörurnar.Það hjálpar öllum.

Varðandi fyrirtæki þá eru það ekki þessir vextir sem gilda heldur vextirnir hjá viðskiptabönkunum.

Ríkið mun örugglega halda fyrirtækjum á floti í gegnum bankana.

Það tók 6 daga síðast hjá viðskiptabönkum að breyta vöxtunum sjáum til hvað þeir verða fljótir núna.

Ef þetta er of mikil hækkun þá mun verðbólgan lækka hratt og krónan styrkjast mikið og þá er leikur einn að lækka þetta aftur.

Johnny Bravo, 28.10.2008 kl. 10:06

2 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Það er nú líklegra en ekki að viðskiptabankarnir hækki vexti strax. Þó þarf það ekki að vera ef fjárþörf þeirra er lítil. Það gæti hins vegar riðið einhverjum fyrirtækjum og heimilum að fullu ef vextir þeirra hækka. Hér á landi voru stýrivextir hækkaðir reglulega í vor og sumar. Ekki bar það tilætlaðan árangur þá og því getur maður ekki séð að það geri það núna.

Haraldur Bjarnason, 28.10.2008 kl. 10:14

3 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Háir styrivextir hafa ekkert verið að virka á verðbólgu hér undanfarið en þetta kemur heimilunum í þrot

Hólmdís Hjartardóttir, 28.10.2008 kl. 10:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband