Hryðjuverkalögin leyfa þjófnað

Lög hverskonar virðast ekki skipta bresk yfirvöld nokkru máli þegar kemur að því að djöflast á Íslendingum þessa dagana. Hvað þá siðferði. Einu lögin sem þeir nýta sér nú eru þeirra eigin hryðjuverkalög og greinilegt er að þar er gert ráð fyrir þjófnaði. Er ekki kominn tími til að leita til alþjóðlegra dómstóla og óska eftir flýtimeðferð þar.
mbl.is Bretar selja eignir Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Veist það Halli að ég er að verða skíthrædd.....  Nú á að kalla sendiherrann heim og senda þann breska út í Kolbeinsey.

Hólmdís Hjartardóttir, 24.10.2008 kl. 13:31

2 Smámynd: 365

Sendiherrann heim!

365, 24.10.2008 kl. 13:36

3 Smámynd: Haraldur Bjarnason

Kannski best að leyfa þeim að kom í loftrýmisflugið og kyrrsetja þá þoturnar þeirra.

Haraldur Bjarnason, 24.10.2008 kl. 13:41

4 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

átti að vera veistu...

Ætli það sé óhætt að hleypa þeim hingað?....nema þeir komi bara á öðrum forsendum

Hólmdís Hjartardóttir, 24.10.2008 kl. 13:46

5 Smámynd: Heidi Strand

Útifundur verður haldinn á Austurvelli næst komandi laugardag 25. október klukkan 15.00. Yfirskrift fundarins verður: Breiðfylking gegn ástandinu.
Takmarkið er að safna saman sem flestu fólki til að láta ráðamenn verða vara við óánægju landsmanna með ástandið. Ekki finna sér ástæðu  til að sitja heima. 

Blysför og annan fund kl 16

Heidi Strand, 24.10.2008 kl. 13:54

6 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Leyfum endilega bresku flugsveitinni að koma í desember... tökum bara á móti þeim með sérsveit BB (dulbúinni sem "heiðursverði") og vísum flugmönnum þeirra umsvifalaust úr landi (með farþegaflugi, engan óþarfa skepnuskap). Kyrrsetjum orrustuþoturnar þeirra svo upp í "stríðsskaðabætur", íslenzkri þjóð til hagsbóta. Í íslenskum lögum eru ákvæði um frystingu eigna alveg eins og þeim bresku, og ef einhverntímann er tilefni til að beita þeim þá er það á alvöru hryðjuverkamenn ef þeir voga sér að hafa viðkomu á landinu okkar með vígtólin sín...

Guðmundur Ásgeirsson, 24.10.2008 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband