Undirlægja löggustjóranna

Lögreglustjórafélag Íslands, vissi ekki það væri til. Það dásamar nú gjörðir Bjössa dáta, enda eins gott því þeir fjúka sem ekki eru honum sammála. Þessi yfirlýsing löggustjóranna er síður en svo sannfærandi. Hún er merki um undirlægju og ekkert annað.
mbl.is Styðja dómsmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já Björn hefur greinilega safnað liði. Lið sem er í þeirri stöðu að það getur ekki aðstöðu sinnar vegna annað en stutt hann.

En flest fólk með eðliega skynsemi sér hvers konar plott er í gangi.

BB er hægt og markvist að rogast með hrís í sitt eigið bál.

Farið hefur fé betra.

hilmar

hilmar jónsson (IP-tala skráð) 28.9.2008 kl. 19:30

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Ég er guð þinn og þú skalt ekki aðra guði hafa. Svo mörg voru þau orð.

Víðir Benediktsson, 28.9.2008 kl. 23:10

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég tók eftir að "Leggur lögga" skrifaði undir stuðninginn og kemur ekki á óvart.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 28.9.2008 kl. 23:16

4 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Mér finnst það alltaf jafn fáránlegt þegar stjórnir félaga eru að álykta í nafni allra félagsmanna, án þess að bera þessa ályktun undir félagsmenn.

Sigrún Jónsdóttir, 29.9.2008 kl. 01:03

5 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Þetta eru náttúrlega sýslumennirnir á landsbyggðinni - og ef það er eitthvað sem Bjarndýrið hefur passað vandlega þá er það að hafa þá í vasanum. Sem núna sýnir sig svo ámátlega hjákátlega!

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 29.9.2008 kl. 09:24

6 Smámynd: Gulli litli

Þú gengur ekki heill til skógarBjörn!

Gulli litli, 29.9.2008 kl. 10:31

7 Smámynd: Guðrún Þóra Hjaltadóttir

Ekki eru þetta löggurnar...hlýtur bara að vera formaðurinn sem vill launahækkun.

Guðrún Þóra Hjaltadóttir, 29.9.2008 kl. 13:59

8 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Þeir þurfa auðvitað að passa að kyssa réttu rassana, halda sínum manni góðum svo þeir haldi starfinu sínu. Undirlægjuháttur af verstu gerð, óþolandi þegar menn geta ekki staðið með sannfæringu sinni.

Lilja G. Bolladóttir, 29.9.2008 kl. 20:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband