Höfðingi er fallinn frá

Í mínum hug er Sigurbjörn Einarsson hinn eini sanni biskup Íslands með fullri virðingu fyrir öðrum sem gegnt hafa því embætti. Ræður hans og vangaveltur eru mér hugleiknar og enginn hefur komist betur að orði á erfiðum og glöðum stundum. Það er gaman til þess að vita að Sigurbjörn hafi náð svo háum aldri og verið vel ern. Hann predikaði í Reykholtskirkju fyrir hálfum mánuði síðan. Höfðingi er fallinn frá, blessuð sé minning hans.
mbl.is Forsætisráðherra minnist Sigurbjörns Einarssonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Guðrún Eiríksdóttir

Hjartanlega sammála. Maður "ólst upp með honum" og ég veit ekki um neinn sem ekki þótti vænt um þennan aldna mannvin. Hann verður alltaf BISKUPINN í mínum huga.

Helga Guðrún Eiríksdóttir, 28.8.2008 kl. 21:28

2 Smámynd: Flosi Kristjánsson

Á mínum æskuárum voru þessir fremstir: Bjarni Benediktsson, Ásgeir Ásgeirsson og Sigurbjörn Einarsson.  Ég held að engin auglýsingastofa hefði getað lyft þeim ofar en þeir sjálfir komu sér með því að sýna og sanna eigin verðleika.

Flosi Kristjánsson, 28.8.2008 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband